Allir heim fyrir kl. 15.00

Stjórnsýsla Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundastarf mun raskast í dag þriðjudaginn 10. desember vegna óveðurs sem spáð er að gangi yfir höfuðborgarsvæðið. Enginn ætti að vera á ferli eftir klukkan 15  nema brýna nauðsyn beri til.

Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun vegna óveðursins sem spáð er. Foreldrar og forráðamenn barna eru beðnir um að sækja börn sín strax að skóladegi loknum til að tryggt sé að allir, börn, foreldar og starfsfólk geti náð heim til sín áður en veðrið skellur á. Foreldrar leikskólabarna sæki börn sín fyrir kl. 15.  

Allt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf í Reykjavík fellur niður svo og starf skólahljómsveita. Eldri grunnskólanemendur fara því beint heim eftir skóladag og eru foreldrar beðnir um að sjá til þess að þeir séu ekki á ferli þegar og eftir að veðrið skellur á.

Akstursþjónusta fatlaðra mun aka heim þeim skólabörnum sem þeirrar þjónustu njóta, strax að loknum skóladegi.

Félagsstarf fullorðinna í Reykjavík fellur niður eftir hádegi í dag og þá munu sundlaugar, útibú Borgarbókasafnsins og söfn á vegum Reykjavíkurborgar verða lokuð eftir kl.14 í dag. Þá verður síma- og þjónustuveri Reykjavíkurborgar einnig lokað kl. 14:00.

Athugið að ef veðurofsinn verður mikill getur það haft áhrif á alla þjónustu borgarinnar þar með talda heimaþjónustu og heimahjúkrun.  Skerðing verður í samráði við notendur og ítrekað er við fólk að nota neyðarnúmerið 112 ef öryggi er ógnað.

Fólk er beðið um að huga að lausamunum sem geta fokið og minnir Sorphirða Reykjavíkur íbúa sérstaklega á að huga vel að sorpílátum sínum og tryggja að þau fjúki ekki.

Lokanir skóla og stofnana eru tilkomnar vegna öryggisráðstafana en enginn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðri í fjölmiðlum og fylgja tilmælum yfirvalda.

Appelsínugul viðvörun þýðir að það séu miðlungs eða mikl­ar lík­ur á veðri sem geti valdið mikl­um sam­fé­lags­leg­um áhrif­um, tjóni eða slys­um og hugsanlega ógnað lífi og lim­um ef aðgát er ekki höfð.