400 milljón króna styrkur til rannsókna á uppgangi populisma í Evrópu

Mannréttindi

""

Reykjavíkurborg hefur ásamt samstarfsaðilum fengið yfir 400 milljóna króna styrk til að rannsaka og greina tegundir og forsendur populisma.

Reykjavíkurborg ásamt samstarfsaðilum hlaut nýlega rúmlega 400 milljóna króna styrk til þriggja ára úr Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB. Styrkurinn er veittur til verkefnisins PaCE (Populism and Civic Engagement) sem miðar að því að greina tegundir og forsendur populisma og hvernig bæta megi gæði og framkvæmd lýðræðis til að sporna við uppgangi populisma í Evrópu. Verkefninu var hleypt af stokkunum í febrúar og er samstarfsverkefni níu evrópskra stofnana og fyrirtækja. Samstarfsaðilar eru Manchester Metropolitan University, Technische Universitat Dresden, Paris Lodron Universtitat Salzburg, Centre for Liberal Strategies Foundation í Búlgaríu, Trilateral Research á Írlandi, Íbúar ses og The Democratic Society í Brussel.  

Verkefnið

Um alla Evrópu hafa sprottið upp pólitískar hreyfingar sem gagnrýna frjálslynt lýðræði og fjölmenningu og mála svarta mynd af slíkri samfélagsgerð og kalla hana gæluverkefni forréttindahópa sem gangi ekki raunverulegra hagsmuna almennra borgara  Slíkar hreyfingar eru af ýmsum toga og sumar þeirra endurspegla lögmætar áhyggjur almennings af auknum ójöfnuði og áskorunum sem tengjast  innflytjendamálum. Aðrar hreyfingar eru skaðlegri og ala á tortryggni að því er virðist með það eitt að markmiði að sundra einingu og samkennd samfélaga. Áhrifa þessa gætir í Bretlandi og í Bandaríkjunum en einnig í Tyrklandi, Ungverjalandi, Póllandi og víðar.

Á Íslandi varð til fjöldahreyfing  kennd við búsáhaldabyltinguna sem bar sum einkenni populisma en sem Íslendingar virkjuðu sem verkfæri til stjórnarskipta í átt að meiri frjálsræði, betra lýðræði, breytingum á stjórnarskrá og væntum ábyrgðum stjórnmálastéttar.

PaCE verkefnið miðar að því að sporna gegn neikvæðum birtingarmyndum og áhrifum populisma, byggja á því sem læra má af jákvæðum dæmum og með því taka þátt í að byggja upp sterkari lýðræðislegan grundvöll fyrir borgara og stofnanir Evrópu. PaCE mun greina tegund, vöxt og afleiðingar evrópskra populistahreyfinga, bakgrunn þeirra, einkenni og samhengi og tengdar áskoranir við frjálslynt lýðræði í Evrópu. Þá mun PaCE þróa verkfæri og leiðir til að mæta áskorunum og gagnrýni á grundvelli samráðs, skilnings, rökræðu og gagnrýnnar hugsunar. Dr. Magnús Yngvi Jósefsson og Dr. Roxana Elena Cziker sem bæði starfa á skrifstofu þjónustu og reksturs Reykjavíkurborgar leiða verkefnið fyrir hönd Reykjavíkur.

Um H2020 rannsóknar og nýsköpunaráætlun ESB

Tilgangur Horizon 2020 er að styðja við rannsóknir, þróun og nýsköpun með það að markmiði að efla hagvöxt í Evrópu, takast á við áskoranir og virkja Evrópskt hugvit til lausna þeirra. Reykjavíkurborg hefur síðan 2017 verið þátttakandi í H2020 og tilheyrir nú samfélagi framsækinna evrópskra borga sem hafa sett alþjóðlegt samstarf, rannsóknir og nýsköpun í forgang og þar sem ESB gegnir lykilhlutverki sem styrktaraðili slíkra verkefna. Sú vinna auðgar stefnur og starfsemi borgarinnar og styður við sjálfbærni rannsókna, þróunar og nýsköpunar í Reykjavík sem í leiðinni skapar áhugaverð störf sem laða að verðmætt vinnafl og eykur þar með félagsauð á Íslandi samfélaginu öllu til hagsbóta.  

Horizon 2020