24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum

Menningarnótt 2023. Langi Seli og skuggarnir spila fyrir gesti Menningarnætur á Kjarvalsstöðum
Menningarnótt 2023. Langi Seli og skuggarnir spila á Kjarvalsstöðum

Mörg bíða með eftirvæntingu eftir Menningarnótt en hátíðin verður haldin þann 24. ágúst í Reykjavík.

 Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar en öll eru verkefnin til þess fallin að gleðja þátttakendur Menningarnætur 2024.

Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar valdi styrkþegana en alls bárust 75 umsóknir í ár. Samtals eru veittir styrkir fyrir fjórar milljónir króna. Verkefnin felast meðal annars í því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, innan- og utandyra. Listhópurinn Óður hlýtur sérstakan styrk frá Reykjavíkurborg. 

Fjölbreytt dagskrá verður í boði á Menningarnótt í ár.

Sjáumst á Menningarnótt 24. ágúst!

Menningarnótt 2023
Menningarnótt 2023

 

Menningarnæturpottur 2024

 

Heimspekikaffi í Iðnó - Baldur Jóhannesson

Heimspekikaffið er staður fyrir frjálsa rökræðu. Allir eru velkomnir, eina sem þarf að mæta með er heilbrigð skynsemi.

Menningarnæturbikarinn í bekkpressu - Kraftlyftingadeild Ármanns 

Kraftlyftingadeild Ármanns uppfyllir gamlan draum um að halda bekkpressumót utandyra í miðbæ Reykjavíkur.  Mótið er fyrir karla og konur á ólíkum aldri. 

Ljóðainnrásin - Queer Situations, hinsegin bókmenntahátíð 

Í ljóðainnrásinni verða flutt ljóð með erótísku ívafi og af nánd, ef svo má segja, ljóðmælandi er nálægt hljóðnemanum, hálfhvíslar ljóðið fyrir hlustandann. Markmiðið er að vekja forvitni, gefa hinsegin skáldum rödd og gefa sjónarhorni þeirra og upplifun pláss. Ljóðainnrásin er spennandi, hún er óvænt og hún gæti hitt fyrir einhvern sem þarf einmitt á henni að halda.

Kramkarnival - Kramber 

Dans- og tónlistarveisla Kramhússins og Krambers fer fram á horni Bergstaðastrætis og Skólavörðustígs. Út á götu mun ríkja sannkölluð karnival stemming þar sem verða meðal annars plötusnúðar, dansatriði og danskennsla í sönnum miðborgaranda. 

EFTIRPARTÍ með Forward Youth Company - Dansgarðurinn ehf 

Ungmennadanshópurinn Forward Youth Company og Dansgarðurinn setja upp dansverkið EFTIRPARTÍ eftir Ásrúnu Magnúsdóttur í Tjarnarbíó! Partíið er búið eða það er allavega alveg að klárast. Æskan er líka búin eða svona næstum því - við höldum samt í hana. Við ætlum að dvelja örlítið lengur, sjá hvort það gerist ekki eitthvað. Eitt lag í viðbót. Einn dans í viðbót.

KPOP Random Dance - K-ICE Dance Crew 

Danshópurinn K-ICE Dance Crew heldur heljarinnar K-POP danspartý á Menningarnótt. Dönsum saman, hittumst og spjöllum. Þau sem þekkja lögin og kunna dansinn hlaupa inn í miðju og dansa með.

HJÚKRUN - Lucky 3 

Félagsleg kóreógrafía sem endurspeglar ofurraunveruleika kynja- og kynþáttahlutverka með vísun í hjúkrunarstarf.  Lucky 3 (st. 2019) er listahópur stofnaður af Darren Mark, Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo sem eru íslenskir listamenn af filippeyskum uppruna.

Borgin Á milli - Á milli space / Aikaterini Spathi 

Á Menningarnótt verður gestum og gangandi boðið að koma í heimsókn í Á milli sem er lítið listamannarekið töfrasamfélag á Ingólfsstræti. Hægt verður að upplifa félagslega mósaík listafólksins og sjá sýningar eftir myndlistarfólk, tónlistarfólk og gjörningalistafólk.

Codapent - Batabréfin - Hrefna Lind Lárusdóttir

Codapent er upplifunarverk þar sem afrakstur listrannsóknar er afhjúpaður. Listrannsóknin snýst um að kanna hvernig megi iðka lækningu, lyfleysu innan skapandi rýmis og á Menningarnótt verður afrakstur þeirra rannsókna opin almenningi. Hér er borgarbúum, gestum og gangandi lofað skjótu bataferli við meðvirkni í gegnum listform og upplifun. 

Spunamaraþon á stóra sviðinu! - Improv Ísland 

Spunamaraþon Improv Ísland hefur verið ómissandi hluti af Menningarnótt allt frá árinu 2014. Boðið verður upp á brakandi ferska spunasýningu á hálftíma fresti frá 15:00 til 22:00. Maraþonið hefur alltaf vakið mikla lukku og hafa færri komist að en vilja. Í ljósi þessa gríðarlega áhorfendafjölda hefur náðst samkomulag við Þjóðleikhúsið um að hafa spunamaraþonið á stóra sviðinu í ár.

Menningarnótt á Dillon - Dillon ehf 

Á Menningarnótt  hafa í gegnum tíðina margir af stærstu listamönnum þjóðarinnar komið fram í garðinum á bakvið Dillon.  Í ár munu tónleikarnir standa frá hádegi og fram að flugeldasýningu.  Meðal listamanna verða Bjartmar Guðlaugsson og Fræbbblarnir.

The Icelandic Pop Orchestra (TIPO) - Anna Karitas Bjarnadóttir 

Horfðu til himins á Menningarnótt. Boðið verður upp á sérstaka þaktónleika hinnar stórskemmtilegu The Icelandic Pop Orchestra á Lindargötu 33.

Bergmál í borginni - Bergmál band

Uppistand í formi tónlistar. Gítar og fallegar raddir prýða fáránlega fyndin lög. Með húmorinn og gleðina að vopni kemur hljómsveitin Bergmál ykkur í góða skapið.

Vitablast  - Björgúlfur Jes Einarsson 

Vitabar á aragrúann allan af fastakúnnum sem venja þar komur sínar allan ársins hring. Stór hluti þess hóps eru tónlistarmenn. Á Menningarnótt verður blásið til tónleika, þemað, ef þema skyldi kallast, er að allir þeir sem koma fram á Vitablast verða fastakúnnar Vitabars.

Menningarnæturtónleikar á KEX - Kex Hostel 

KEX Hostel heldur glæsilega útitónleika í portinu á Menningarnótt þar sem að grasrót reykvískar tónlistarsenu verður fagnað.

Elíza Newman og hljómsveit með tónleika í Þingholtunum

Elíza Newman og hljómsveit flytja lög af ferli tónlistarkonunnar ásamt nokkrum frábærum íslenskum ábreiðum í bakgarði á Freyjugötu í Þingholtunum. Eðal kósí!

Svitaveita Reykjavíkur - Raftónlistarveisla á Menningarnótt! - Sweaty Records 

Sannkölluð raftónlistarveisla verður í boði í garðinum á Sjafnargötu 10. Plötuútgáfan og fjöllistahópurinn Sweaty Records stendur fyrir heljarinnar garðveislu þar sem gestum og gangandi er boðið að baða sig í dúndrandi bassatrommum og sturluðum rafhljóðum. Komdu og svitnaðu með okkur!

Las Hienas: FemCafé vinnustofa + tónleikar - Hugrún Elfa Sigurðardóttir 

Ofurkvennalatín hljómsveitin Las Hienas verður stödd á Íslandi á Menningarnótt sem hluti af tónleikaferðalagi Íslatín verkefnisins. Þær munu halda vinnustofu og tónleika í vel völdum garði miðbæjarins, opið hverjum sem vill, en vinnustofan þó sérstaklega hugsuð fyrir konur og kvár með feminískum áherslum.

Fuego taqueria Stage - La chingona EHF ( Fuego taqueria ) 

Gestum er boðið í skemmtilega veislu til að fagna og upphefja latínumenningu. Boðið verður upp á afþreyingu eins og dans og tónlist allan daginn fyrir börn og fjölskyldur.

Listahátíð á Ásvallagötu í tilefni af 50 ára höfundarafmæli Þórarins Eldjárns - Úlfur Eldjárn 

Í tilefni af 50 ára höfundarafmæli Þórarins Eldjárns og útgáfu nýrrar barnaljóðabókar, Dótarímna, munu afkomendur hans, vinir og velunnarar slá upp listahátíð í garðinum við heimili hans að Ásvallagötu 12. 

Arts and crafts in Hafnarhúsið - hafnar.haus 

Viðburðurinn fer fram í Hafnarhúsinu og á hæðunum fyrir ofan. Þetta er samstarfsviðburður sköpunarmiðstöðvarinnar hafnar.haus og Listasafns Reykjavíkur.
Hægt verður að kynnast hinu öfluga samfélagi skapandi fagfólks sem starfar í húsinu.  Listafólkið stendur fyrir viðburðum allan daginn, eins og smiðjum fyrir börn, gjörningum og leikjum fyrir unga sem aldna.

Kemuri Music Creatures - Bartosz Grygoruk 

Kaffihúsið „Kemuri Coffeshop“ á Hverfisgötu 82 býður upp á ýmiskonar listviðburði sem tengjast pólska samfélaginu á Íslandi. 

Pop-Up Sveiflutónleikar - Katrín Guðnadóttir

Hver tími hefur sína partýtónlist og á millistríðsárunum var það dynjandi sveifla sem tryllti lýðinn. Hljómsveitin Fjaðrafok endurvekur þessa stemningu fyrir gesti og gangandi á Menningarnótt.