Framúrskarandi frístundastarf verðlaunað á uppskeruhátíð

Félagsmiðstöðin Hólmasel, félagsmiðstöðin Laugó og frístundaheimilið Vinaheimar hlutu hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs 2025 fyrir framúrskarandi frístundastarf.
Þá hlaut verkefnið VAXANDI viðurkenningu fyrir öflugt samstarf en að því standa Frístundamiðstöðin Tjörnin og Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verðlaunin og viðurkenningin voru veitt í morgun á uppskeruhátíð frístundamiðstöðvanna í Reykjavík sem kallast Höfuðið í bleyti, í Hinu Húsinu.
Vettvangur til að skiptast á hugmyndum
Uppskeruhátíðin er vettvangur til að skiptast á hugmyndum og reynslu og fór vinnan fram í málsmiðjum um áhugaverð verkefni. Þar má nefna verkefni eins og Hjálparar á frístundaheimilum, Félagsmiðstöðvahermirinn, Strákar spjalla, Farsæld til framtíðar – verkefni 7. bekkja í Efra-Breiðholti, Læsi í víðum skilningi, Lýðræðisdagurinn, Hlaðvarpsvæðing frístundaheimila Tjarnarinnar, Valdefling ungmenna úr minnihlutahópum og mörg til viðbótar.
Upplýsingar um verðlaunaverkefnin og rökstuðningur fyrir hvatningarverðlaununum eru eftirfarandi:
Félagsmiðstöðvahermirinn
Dómnefnd valdi Félagsmiðstöðvaherminn í Hólmaseli vegna frumlegrar og einlægrar nálgunar á foreldrasamstarf í félagsmiðstöðvastarfi. Með því að bjóða foreldrum að taka þátt í starfi félagsmiðstöðvarinnar sem „hermir“ og gefa þeim tækifæri til að upplifa það sem unglingarnir sjálfir gera er byggð brú milli heimilis og félagsmiðstöðvar. Þetta verkefni eflir tengsl, eykur skilning og stuðlar að aukinni þátttöku og trausti. Verkefnið er einstakt á landsvísu og sýnir skýrt hvernig skapandi hugsun getur breytt hefðbundnum samskiptaleiðum og haft raunveruleg áhrif.

Klúbbastarfshjálparinn
Dómnefnd vildi veita Klúbbastarfshjálparanum í frístundaheimilinu Vinaheimum verðlaun fyrir einfalt en öflugt tæki sem styður starfsfólk í að skapa dýrmæt tækifæri fyrir börn og unglinga í frístundastarfi. Handbókin veitir skýra sýn og hagnýt verkfæri sem ýta undir sköpunargleði, þátttöku og áhuga. Hún eflir fagmennsku og örvar þróun starfsins með því að nýta styrkleika og áhugamál starfsfólks. Þetta er dæmi um hvernig vel unnin leiðsögn getur haft víðtæk áhrif og styrkt bæði starfsemi og starfsfólk til framtíðar.

Lýðræðishátíð Laugó
Lýðræðishátíð félagsmiðstöðvarinnar Laugó hlýtur hvatningarverðlaun fyrir framsækna og skapandi nálgun á lýðræðislega þátttöku barna og unglinga. Með verkefninu var lýðræðisvinnan dýpkuð og gerð sýnileg, meðal annars með listrænni tjáningu, starfi ráða og virkum áhrifum á starf félagsmiðstöðvarinnar. Þetta er dæmi um verkefni sem setur lýðræði í samhengi við daglegt líf ungmenna og eflir með þeim rödd, ábyrgð og sköpun – í anda menntastefnunnar og barna- og unglingalýðræðis.

VAXANDI – samstarfsverkefni
Dómnefnd veitti VAXANDI viðurkenningu fyrir öflugt samstarf Frístundamiðstöðvarinnar Tjarnarinnar og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og þróunarstarf sem styður við félags- og tilfinningahæfni barna, unglinga og starfsfólks í frístundastarfi. Verkefnið byggir á fræðilegum grunni, jákvæðri sálfræði og hefur haft greinileg áhrif á starfsumhverfi og líðan. Með því að veita starfsfólki skýr verkfæri og handleiðslu hefur VAXANDI skapað varanlega breytingu í menningu og fagmennsku í frístundastarfi. Verkefnið er frábært dæmi um árangursríkt samstarf fræða og vettvangs.
