14 metra hátt Oslóartré fellt í Heiðmörk

Mannlíf

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sagar stofn trésins. Róbert Reynisson
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sagar stofn trésins.

Það var fallegt um að litast í Heiðmörk í morgun þegar borgarstjóri felldi Oslóartréð sem mun prýða Austurvöll yfir hátíðirnar.

Fallegt í Heiðmörk

Eftir að hafa fengið viðeigandi öryggisútbúnað hjá Skógræktinni til verksins naut borgarstjóri aðstoðar starfsmanna Skógræktarfélags Reykjavíkur við að saga tréð og fella það. Við mælingu reyndist það vera um 14 metra hátt sitkagrenitré sem er um 70 ára gamal og því talið er að því hafi verið plantað um 1950. Tréð stóð í Landnemaspildu Norska félagsins við Torgeirsstaði,sem er sumarbústaður Nordmannslaget í Heiðmörk, og þar hafa félagsmenn stundað skógræktarstarf í samvinnu við Skógræktarfélag Reykjavíkur í gegnum árin og tréð er því sannarlega gjöf frá norðmönnum.

Osló gefur bækur

Oslóarborg hefur í áratugi gefið Reykvíkingum jólatré sem tákn um vináttu borganna og sameiginlegar hefðir og jólagleði. Þó svo að tréð komi úr Heiðmörk þá hefur það ekki breytt neinu um vináttuna, því í stað jólatrés gefa borgaryfirvöld í Osló grunnskólum í Reykjavík bækur.

Oslóartréð verður sett upp á Austurvelli og verður mikið lagt í skreytingar að þessu sinni til þess að gleðja gesti og gangandi. Jólaljósin á trénu verða svo tendruð þann 28. nóvember næstkomandi. Ekki verður um neina athöfn að ræða að þessu sinni vegna aðstæðna í samfélaginu.

Færeyingar fá tré

Heiðmörkinni var einnig fellt tré sem verður fært Færeyingum að gjöf og kemur til með að prýða Tinghúsvöllinn í miðborg Þórshafnar. Þar verður kveikt á jólalýsingunni þann 27. nóvember nk. Eimskip sér um flutning á trénu til Færeyja.