Ný starfseining Klettaskóla opnar í Korpu í haust

Loftmynd af Korpuskóla

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að opna nýja starfseiningu Klettaskóla í fyrrum Korpuskóla frá og með næsta hausti, 2026. Unglingadeild skólans og frístundastarf Öskju verður í Korpuskóla og er unnið að breytingum á húsnæðinu til að mæta þörfum nemenda og starfsfólks.

Unnið er að breytingum á Korpuskóla

Ákvörðunin var tekin í kjölfar mikils plássleysis í Klettaskóla og er í samræmi við niðurstöður vinnu haghóps sem skilaði áliti árið 2023. Í þeim hópi sátu fulltrúar starfsfólks Klettaskóla, foreldrafélags, skólaráðs, Þroskahjálpar, Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og foreldra nemenda.

Unnið hefur verið að undirbúningi breytinganna frá því í byrjun árs og eru framkvæmdir í Korpuskóla á áætlun. Gert er ráð fyrir að þeim ljúki fyrir 1. ágúst 2026 og að starfsemi hefjist í haust. 

Skipting nemenda og frístundastarfs

Samkvæmt fyrirliggjandi útfærslu verður nemendum Klettaskóla skipt milli húsnæða skólaárið 2026–2027 á eftirfarandi hátt:

  • 1.–7. bekkur verður áfram í núverandi húsnæði Klettaskóla.
  • 8.–10. bekkur flyst í nýja starfseiningu Klettaskóla í Korpu.

Frístundastarfið verður jafnframt endurskipulagt:

  • Gulahlíð (1.–4. bekkur) verður áfram í Vesturhlíð 3 en mun flytjast inn í skólann þegar aðstæður leyfa.
  • Hekla (5.–7. bekkur) flytur frá Þorragötu í aðstöðu Öskju í Klettaskóla.
  • Askja (8.–10. bekkur) verður staðsett í Korpu.

Samþykkt borgarráðs gerir jafnframt ráð fyrir að frá og með hausti 2027 verði 7. bekkur einnig í Korpuskóla.

Nauðsynlegar aðgerðir vegna fjölda nemenda

Skólaárið 2025–2026 eru 141 nemandi skráður í Klettaskóla, þrátt fyrir að húsnæði skólans hafi upphaflega verið hannað fyrir 80–90 nemendur. Ljóst er að nemendafjöldi hefur vaxið hratt og fyrir haustið 2026 láu fyrir umsóknir frá 41 nýjum nemanda.

Í vor útskrifast 11 nemendur úr 10. bekk, en heildarfjöldi nemenda í 1.–9. bekk verður engu að síður um 130 börn. Af þessum sökum er talið ómögulegt að mæta þjónustuþörf nemenda í núverandi húsnæði án frekari aðgerða.

Nýtt stjórnendateymi

Til að tryggja góða innleiðingu breytinganna verður myndað nýtt stjórnendateymi fyrir starfseiningu Klettaskóla í Korpu frá og með vori 2026. Teymið mun starfa í nánu samstarfi við núverandi stjórnendur Klettaskóla og frístundastarfsins til að tryggja skýra upplýsingagjöf og vandaðan undirbúning fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk.

Samhliða vinnu innan Klettaskóla er unnið að stefnumótun sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um byggingu nýs sérskóla og er gert ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir árslok 2026.

Rýmra verður um nemendur Klettaskóla

Með nýtingu Korpuskóla fyrir 8.-10. bekk Klettaskóla verður hægt að létta á starfsemi skólans í Suðurhlíð. Undanfarin ár hefur eftirspurn eftir skólavist í Klettaskóla farið langt fram úr því sem skólinn ræður við og í fyrra var brugðist við með því að bjóða hópi reykvískra nemenda sem ekki komust inn skólavist í Húsaskóla. Stækkunin með einingunni í Korpu gerir að verkum að hægt er að fjölga nemendum um sjö og rýmka um starfsemi skólans sem hefur verið með nemendafjölda langt umfram húsrúm í mörg ár. Þá verður frístundastarfsemi Heklu flutt í skólann en hún hefur verið á Þorragötu síðustu ár og hægt verður að skipta einum stórum árgangi í fleiri bekki. Þannig verður með breytingunum hægt að koma betur til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda og um leið þarf ekki að keyra nemendur úr skóla í frístundastarf á Þorragötuna.

Þar sem ekki verður að fullu hægt að svara eftirspurn eftir skólavist í Klettaskóla verður nokkrum reykvískum nemendum með lögheimili boðin skólavist í Húsaskóla eða í önnur úrræði. Sú leið var fyrst reynd síðasta haust til að mæta þeim börnum sem ekki komust inn í Klettaskóla og hefur gefist afar vel.

Yfir stendur greining á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um framtíðaruppbyggingu sérskóla. Ljóst er að þörfin fyrir sérúrræði mun aukast á næstu árum og áratugum og mikilvægt að innviðauppbygging taki mið af því. „Með aðstöðunni í Korpu hefur aðstaða Klettaskóla verið bætt verulega og þessi breyting styður jafnframt mjög vel við faglegt starf og nám barnanna sem við fögnum innilega. Stefnt er á að frá og með hausti 2027 verði Korpuskóli sjálfstæð skólaeining. Þrátt fyrir þessar breytingar nær Klettaskóli ekki að anna þörfinni að fullu og því finnst okkur mikilvægt að leita annarra lausna og því höfum við ákveðið að styrkja bekkinn í Húsaskóla næsta haust. Ég veit að hin sveitarfélögin hafa eða munu einnig finna lausnir fyrir sína nemendur á meðan ekki næst að anna eftirspurninni að fullu í Klettaskóla eða öðrum sérskóla,“ segir Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs.