Nýtt deiliskipulag fyrir Sæbrautarstokk í auglýsingu

Teiknuð mynd af fyrirhuguðum Sæbrautarstokk.
Teiknuð mynd af fyrirhuguðum Sæbrautarstokk.

Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að senda tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Sæbrautarstokk í auglýsingu. 

Tillagan snýr að uppbyggingu stokks á Sæbraut sem hefur það markmið að bæta umferðaröryggi, draga úr hávaða og styrkja tengingar milli hverfa. Fyrirhugað er stokkurinn verði á eins kílómetra löngum kafla á Sæbraut, frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog verða byggð ofan á norðurhluta stokks með römpum að og frá Sæbraut til norðurs og suðurs. Í Sæbrautarstokknum verða tvær akreinar í hvora átt auk blöndunarreina að- og fráreina og neyðarvasa samkvæmt öryggiskröfum. 

Með stokknum skapast jafnframt tækifæri til að þróa nýtt grænt borgarrými ofan á mannvirkinu. Í tillögunni eru engar nýjar heimildir fyrir byggingum en á síðari stigum stendur til að þróa blandaða byggð íbúða og atvinnuhúsnæðis meðfram austurjaðri hverfisgarðsins og við hið nýja Vogatorg. Málinu var vísað til borgarráðs til staðfestingar. 

Hverfisgarður ofan á stokknum 

Gert er ráð fyrir að yfir stokknum verði mótað lífvænlegt gróðurumhverfi með göngu- og hjólastígum sem tengja saman nærliggjandi hverfi og bæta aðgengi íbúa að útivistarsvæðum. Svæðið mun þróast sem hverfisgarður sem nýtist bæði íbúum og gestum. Samkvæmt tillögunni verður einnig ráðist í mótvægisaðgerðir vegna hljóðs frá bílaumferð.  

Framkvæmdir á næstu árum 

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við Sæbrautarstokk fari fram á árunum 2027–2030. Sæbrautarstokkurinn er ein af stofnvegaframkvæmdum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, samvinnuverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins. Unnið hefur verið að verkefninu í samvinnu við Vegaerðina og Betri samgöngur.  Verkefnið er hluti af stærri sýn um þróun samgangna og borgarumhverfis á svæðinu, þar sem áhersla er lögð á öruggari og vistvænni ferðamáta. Að lokinni afgreiðslu borgarráðs verður tillagan auglýst í skipulagsgátt þar sem almenningi gefst kostur á að kynna sér tillöguna og gera athugasemdir.