Leikskólakennari/leiðbeinandi
Laust er til umsóknar starf leikskólakennara/leiðbeinanda í leikskólanum Rauðaborg, Viðarási 9, 110 Reykjavík.
Í Rauðaborg eru 3 deildir og 58 börn. Leitað er að starfsmanni sem hefur metnað til að vinna með ungum börnum, kenna þeim og sýna þeim virðingu og umhyggju.
Í Rauðaborg er lögð áhersla á vináttu, frjálsan leik og sjálfstæði barna.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Fríðindi í starfi
- Menningakort-bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvika.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Íslenska B1 skv. samevrópska tungumálarammanum
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Upplýsingar um starfið gefur Unnur Hermannsdóttir leikskólastjóri í síma 411-3380 eða á netfangið Unnur.Hermannsdottir@reykjavik.is