Húsnæði og lóð fyrir leikskóla

Reykjavíkurborg óskar eftir að taka á leigu 800-2.000 m² húsnæði í Reykjavík fyrir leikskóla ásamt 1.400-1.800 m² aðliggjandi útileiksvæði, sem er sólríkt og skjólgott. 

Leikskólaborgarar

Miðað er við að taka á leigu húsnæði sem er tilbúið til notkunar innan 6-18 mánaða frá undirritun leigusamnings. Mögulegt er að eitt eða fleiri húsnæði verði tekin á leigu. Um auglýsingu er að ræða og felur hún ekki í sér loforð um viðskipti.

Gert er ráð fyrir að leigutími verði  10-15 ár með mögulegri framlengingu, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. 

Gott aðgengi skal vera fyrir alla þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og hæfilegur fjöldi bílastæða miðað við staðsetningu fyrir starfsfólk og foreldra að fara með börn í leikskóla.

Ekki eru gefnar upp nákvæmar stærðir né fjöldi einstakra rýma þar sem það er háð stærð húsnæðis og fjölda barna sem geta sótt leikskólann. Þegar tillaga að húsnæði, lóð og útileiksvæði liggur fyrir mun leigutaki meta tillögu leigusala og tilgreina nákvæmar kröfur um stærðir og fjölda rýma auk þess aðbúnaðar sem þarf að vera í hverju rými. 

Húsnæðið þarf að vera hentugt, bjart, með vinnuumhverfi sem er hvetjandi, tekur vel á móti starfsfólki, börnum og foreldrum og endurspeglar góðan vinnuanda. 

Gögn sem æskilegt er að fylgi þurfa m.a. að innihalda eftirfarandi upplýsingar: 

  • Afhendingartíma húsnæðis 
  • Staðsetning, stærð og aldur húsnæðis 
  • Upplýsingar um lóðarstærð, eignarhald og hvernig aðgengi að húsnæði er frá lóð og útileiksvæði 
  • Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu 
  • Áætluð leiguverð á hvern m² og heildarleiguverð 
  • Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og næstu lóða
  • Tilvísun í gildandi aðalskipulag 

Áskilinn er réttur til að óska eftir því við leigusala að hann leggi fram úttektarskýrslu, frá óháðum aðila, um almennt ástand húsnæðis t.a.m. að það sé laust við rakaskemmdir. Það skal gert áður en skrifað er undir leigusamning.

Tillögur skulu berast til Eignaskrifstofu Reykjavíkurborgar esr@reykjavik.is  eigi síðar en 15. október 2024 kl.18:00. Fyrirspurnum er beint á sama netfang. 

Við mat á hagkvæmni tillagna verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og lóðar, skipulag húsnæðis og lóðar út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.