Nú styttist í að almyrkvi á sólu verði sýnilegur yfir Íslandi þann 12. ágúst næstkomandi, en um er að ræða einn merkilegasta náttúruviðburð síðari ára. Þetta er fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík síðan 17. júní 1433. Almyrkvinn sést einnig frá Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga.
Almyrkvaslóðin sést greinilega á höfuðborgarsvæðinu sem gerir svæðið að einum besta stað landsins til að upplifa almyrkvann. Íbúar í Reykjavík þurfa því ekki að leita langt yfir skammt til að upplifa þennan einstaka náttúruviðburð. Með því að velja hentugan stað í eða við heimili sitt getum við hvert og eitt lagt okkar af mörkum við að tryggja almannaöryggi og vernda viðkvæm svæði.
Íbúar á vestanverðu landinu geta notið þess að upplifa hann frá heimilum sínum en í öðrum landshlutum verður hægt að sjá deildarmyrkva.
Njótum almyrkvans í heimabyggð
Við hvetjum íbúa Reykjavíkur til að upplifa almyrkvann sem næst heimili sínu. Það verður sérstök upplifun að verða vitni að almyrkvanum úr eigin hverfi og víða verður frábært útsýni.
Í öllum hverfum borgarinnar verður hægt að fylgjast með almyrkvanum.
Tímasetning sólmyrkva í Reykjavík:
Deildarmyrkvi hefst klukkan 16:47 og almyrkvi hefst klukkan 17:47. Almyrkvinn stendur yfir allt frá 46 sekúndum upp í 63 sekúndur eftir hverfum í borginni.
Nánari upplýsingar á Fræðslugátt Sævars Helga
Íbúar eru hvattir til þess að fara á opin svæði í sínum hverfum til dæmis á skólalóðir eða græn svæði í hverfinu.
Græn svæði í hverfum:
- Landakotstún, Hljómskálagarður, Klambratún, Nauthólsvík, Skólavörðuholt, Klambratún, Nauthólsvík, Öskjuhlíð, Veðurstofuhæð, Laugarnestangi, Seljatjörn, Hallsteinsgarður.
Skólalóðir í hverfum:
- Vesturbæjarskóli, Hagaskóli, Hlíðaskóli,Laugalækjarskóli, Vogaskóli, Breiðagerðisskóli, Réttarholtsskóli, Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Seljaskóli, Árbæjarskóli, Norðlingaskóli, Rimaskóli, Húsaskóli, Dalsskóli og Sæmundarskóli
Þetta er aðeins brotabrot af skólalóðum borgarinnar og íbúar meta hvar best er að vera.
Öryggi og góð umgengni
Til að tryggja sem besta upplifun fyrir alla biðjum við gesti að:
- Fylgja leiðbeiningum lögreglu, björgunarsveita og starfsfólks á svæðinu.
- Nota aðeins viðurkennd sólarmyrkvagleraugu eða annan öruggan búnað þegar horft er á sólina fyrir og eftir almyrkvann.
- Leggja aðeins á merktum bílastæðum og halda neyðarleiðum opnum.
- Ganga vel um náttúruna og taka allt rusl með sér.
- Notkun dróna yfir mannfjölda er bönnuð á meðan á almyrkvanum stendur, þar sem þeir geta raskað upplifun annarra og skapað óþarfa öryggisáhættu.
Umferð og lokanir í Reykjavík
Til að stuðla að öruggri og greiðri umferð eru gestir hvattir til að koma gangandi eða hjólandi á svæði innan Reykjavíkur til að minnka bílaumferð.
Suðurgata verður lokuð fyrir akstri við Hringbraut frá klukkan 15:00 til klukkan 20:00. Allar þvergötur Suðurgötu verða einnig lokaðar nema Þorragata en um hana er opið fyrir umferð í Skerjafjörð. Hjáleið Strætó í Skerjafjörð verður um Þorragötu.
Ægisíða verður lokuð fyrir bílaumferð við Hofsvallagötu, Fornhaga og Dunhaga frá klukkan 15:00 til klukkan 20:00. Einnig verður lokað fyrir bílaumferð við Lynghaga og Starhaga á þessum tíma. Við Ægissíðu og meðfram Skerjafirði verða matarvagnar og salerni.
Þessar ráðstafanir eru gerðar þar sem búist er við mikilli umferð á þessu svæði. Markmiðið er að greiða fyrir umferð, auka öryggi og tryggja að viðbragðsaðilar geti komist greiðlega um ef á þarf að halda.
Góð ráð til ferðafólks
Fólk sem ætlar að leggja land undir fót til þess að sjá almyrkvann er vinsamlegast beðið um að vera vel undirbúið og kynna sér vel öll góð ráð til ferðafólks.
Ráðlagt er að mæta snemma og dvelja lengur, vera vel búin, aka varlega og sýna þolinmæði. Gera má ráð fyrir aukinni umferð bæði fyrir og eftir almyrkvann.
Fylgist vel með upplýsingum
Fólk er hvatt til að fylgjast með upplýsingum stjórnvalda, skoða veðurspá og fylgja leiðbeiningum lögreglu og viðbragðsaðila.