Yfirkjörstjórnir að störfum í Ráðhúsi Reykjavíkur

Kosningar

""

Í dag hófu yfirkjörstjórnir í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður móttöku á framboðslistum og meðmælum í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Fundur kjörstjórnanna stóð yfir frá kl. 10 til 12 og nýttu tvö framboð; Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Dögun, tækifæri  til að skila af sér snemma. Kjörstjórnirnar funda aftur á sama stað nk. föstudag til að taka á móti gögnum frá þeim framboðum sem eftir standa en framboðsfrestur rennur út kl. 12. á hádegi þann 14. október.