Varað við sjósundi vegna gerlamengunar

Heilbrigðiseftirlit

Fráveitustöð Veitna

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mælir gegn sjósundi á baðstaðnum í Nauthólsvík vegna hugsanlegrar gerlamengunar frá dælustöðinni í Faxaskjóli í dag og á morgun. 

Enn stendur yfir viðgerð í dælustöðinni við Faxaskjól en samkvæmt Veitum ohf. er áætlað að henni ljúki í dag sjá nánar. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur tekið sýni á völdum stöðum í nágrenni dælustöðvarinnar meðan á viðgerð hefur staðið.  Niðurstöður sem bárust Heilbrigðiseftirlitinu í dag 27. nóvember vegna sýna sem tekin voru 24. nóvember, sýna hækkun á gerlamagni í nágrenni dælustöðvarinnar eins og við var að búast. Þann dag sýndu sýnin einnig nokkra hækkun á gerlamagni á baðstaðnum í Nauthólsvík.  Aðstæður við sýnatöku þann 24. nóvember voru óhagstæðar veðurfarslega, m.a. mikið upprót sjávar og mikið af fugli á sýnatökustöðum. Ekki er hægt að staðfesta orsök tilfallandi mengunar í Nauthólsvík þennan dag.  Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mælir því ekki með sjósundi í Fossvogi í dag og á morgun þó að aðstæður núna séu ágætar, lygnt og bjart. 

Sýni verða tekin aftur í dag. 

Hægt er að fylgjast með upplýsingum hér 

Athugið að endanlegar niðurstöður liggja fyrir tveimur til þremur sólarhringum eftir sýnatöku.