Þetta vilja börnin sjá!

Mannlíf Menning og listir

""

Sýning á myndskreytingum í 33 bókum sem komu út á árinu 2016 verður opnuð í Gerðubergi sunnudaginn 22. janúar. 

24 íslenskri myndskreytar eiga myndir á sýningunni Þetta vilja börnin sjá!. en jafnframt verða bækurnar sem þær eru í aðgengilegar gestum. 

Myndskreytingarnar eru eins fjölbreyttar og þær eru margar og gefur að líta verk bæði gamalreyndra teiknara sem fyrir löngu eru vel þekktir í heimi íslenskra barnabókmennta, sem og glæný verk myndhöfunda sem nú sýna í fyrsta sinn. Þarfir barna eru sérstaklega hafðar í huga við uppsetningu mynda og sýningarinnar sem heild. 

Listamennirnir sem eiga myndskreytingar á sýningunni eru: Andri Kjartan Andersen, Ari Hlynur Guðmundsson Yates, Auður Þórhallsdóttir, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir, Elín Elísabet Einarsdóttir, Elsa Nielsen, Freydís Kristjánsdóttir, Hafsteinn Hafsteinsson, Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Heiðdís Helgadóttir, Katrín Matthíasdóttir, Kristín Arngrímsdóttir, Kristín Ragna Gunnarsdóttir, Lára Garðarsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Lína Rut Wilberg, Logi Jes Kristjánsson, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, María Sif Daníelsdóttir, Sigmundur Breiðfjörð Þorgeirsson, Sigrún Eldjárn, Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir og Þórir Karl Bragason Celin.

Þetta er í 15. sinn sem sýningin Þetta vilja börnin sjá! er haldin í á vegum Borgarbókasafnsins – menningarhúss Gerðubergi og vekur hún jafnan verðskuldaða athygli. Sýningin verður í Gerðubergi til 5. mars, en að því loknu heldur sýningin í ferðalag um landið sem stendur út árið. Börn úr 3. bekkjum grunnskóla munu heimsækja sýninguna á meðan á henni stendur í Gerðubergi, fá leiðsögn og taka þátt í skemmtilegum leikjum á vegum Borgarbókasafnsins.

Þær myndskreyttu barnabækur sem útgefendur hafa tilnefnt keppa ennfremur til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar, en verðlaunin eru þrískipt: fyrir bestu frumsömdu íslensku barnabókina, bestu þýðingu á barnabók yfir á íslensku og bestu myndskreytingu á íslenskri barnabók. Tilnefningar til verðlaunanna  verða kynntar á sýningunni  miðvikudaginn 1. mars og verðlaunin verða afhent í Höfða síðasta vetrardag í apríl.

Sýningin verður opnuð sunnudaginn 22. janúar kl. 14, en er að öðru leyti opin gestum og gangandi á opnunartíma Gerðubergs, virka daga kl. 8-18 og um helgar kl. 13-16.