Styrkir úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen

Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti styrki úr minningarsjóði Gunnars Thoroddsen í 31. sinn við hátíðlega athöfn í Höfða í gær miðvikudaginn 10. janúar. Að þessu sinni hlaut Hrafnista í Reykjavík  og samtökin Olnbogabörn/Týndu börnin styrk upp á 500 þúsund krónur  hvort.

Hrafnista í Reykjavík hlaut styrkinn fyrir að hafa verið leiðandi aðili í þjónustu og umönnun aldraðra í sextíu ár, en dvalarheimili Hrafnistu í Reykjavík var tekið í notkun árið 1957. Það voru Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Reykjavík og Guðmundur Hallvarðsson fyrrverandi stjórnarformaður Sjómannadagsráðs sem tóku við styrknum. 

Olnbogabörnin/Týndu börnin fengu styrkinn fyrir baráttu um bætt úrræði í meðferðarmálum ungs fólks með áhættuhegðun . Þær Berglind Hólm Harðardóttir og Arna Sif Jónsdóttir tóku við styrknum fyrir hönd samtakanna og sögðu hann koma sér afar vel fyrir starfsemina.

Minningarsjóður Gunnars Thoroddsen var stofnaður af hjónunum Bentu og Valgarð Briem 29. desember 1985 þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Valgarð Briem var viðstaddur athöfnina í gær.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrk til einstaklinga eða hópa, stofnana eða félaga, á sviði mannúðarmála, heilbrigðismála eða menningarmála. Gunnar Thorodssen var borgarstjóri í Reykjavík í tólf ár – frá árinu 1947 til ársins 1959 og alþingismaður