Skyggnst inní veröld Katrínar Sigurðardóttur, sýningaropnun 3. október í Hafnarhúsi

Menning og listir

""

Sýningin Horft inní hvítan kassa verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 3. október kl. 16. Á sýningunni eru verk sem safnið hefur nýlega eignast eftir myndlistarkonuna Katrínu Sigurðardóttur og vinnumódel af nokkrum af hennar helstu verkum. Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast starfi listakonu sem á síðustu tíu árum hefur átt verk á fjölmörgum virtum sýningarstöðum víða um heim.

Sýningin Horft inní hvítan kassa verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, laugardaginn 3. október kl. 16. Á sýningunni eru verk sem safnið hefur nýlega eignast eftir myndlistarkonuna Katrínu Sigurðardóttur og vinnumódel af nokkrum af hennar helstu verkum. Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast starfi listakonu sem á síðustu tíu árum hefur átt verk á fjölmörgum virtum sýningarstöðum víða um heim.

Á sýningunni Horft inní hvítan kassa eru tvö mikilvæg verk á ferli listakonunnar. Verkin bera sterk höfundareinkenni Katrínar og var annað þeirra, Boiserie, sérstaklega unnið fyrir einkasýningu hennar á Metropolitansafninu í New York árið 2010. Það er nákvæm eftirgerð 18. aldar herbergis í Hôtel de Crillon í París (1777–80). Upprunalega herbergið er varðveitt í safneign Metropolitansafnsins. Verkið er lokaður marghyrndur klefi sem áhorfendur upplifa í gegnum veggspegla sem prýða rýmið. Það sem blasir við er drifhvít kyrralífsmynd, fullbúin húsgögnum og húsmunum með draumkenndu yfirbragði. Boiserie er dæmigert fyrir þau verk Katrínar sem fjalla um það hvernig skynjun okkar er háð rýmislegri upplifun.  En með óvæntum breytingum á hlutföllum, þar sem byggingalist, korta- og módelgerð mætast, hafa innsetningar hennar knúið áhorfendur til að skoða veröldina í kringum sig frá nýju sjónarhorni.

Módelin á sýningunni, sem eru frá árunum 2004–2015,  eru áhugaverð heimild um vinnuferli, rýmishugsun og nálgun listakonunnar við sýningar og samhengi verka. Þau eru þannig einstök viðbót við heimildasafn Listasafns Reykjavíkur. Verkin sem módelin byggjast á eru dæmi um þá tegund samtímalistar sem er bundin tíma og rými. Áhorfendur þekkja mörg þeirra af ljósmyndum og í gegnum skrif fræðimanna. Eitt af módelunum á sýningunni er af verki Katrínar sem reist var á Feneyjatvíæringnum árið 2013.

Katrín Sigurðardóttir (f. 1967) hefur haslað sér völl sem ein áhugaverðasta listakona Íslendinga og er nafn hennar komið inn í alþjóðlegar uppflettibækur um fremstu listamenn samtímans.
Horft inní hvítan kassa er fjórða einkasýningin á verkum hennar í Listasafni Reykjavíkur. Hún hefur haldið einkasýningar í Metropolitansafninu í New York (2010), MoMA PS1 í New York (2006), FRAC Bourgogne, Dijon í Frakklandi (2006), Sala Siqueiros í Mexíkóborg (2005),  Fondazione Sandretto, Torino á Ítalíu (2004), MIT List Visual Arts Center í Boston (2015) og í Parasol Unit Foundation for Contemporary Art í London (2015). Um þessar mundir má sjá verk eftir Katrínu á The High Line í New York.

Katrín Sigurðardóttir ræðir sýninguna við gesti Hafnarhúss sunnudaginn 4. október klukkan 15.