Reykjavíkurdætur og Emmsjé Gauti á La Mercé í Barselóna

Menning og listir

""

Fjölbreyttur hópur íslenskra listamanna kemur fram á borgarhátíðinni La Mercè í Barselóna í lok september en Reykjavík er gestaborg hátíðarinnar í ár. 

Nöfn listamannanna voru kynnt á sameiginlegum blaðamannafundi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra og Ödu Calou, borgarstjóra Barselóna, í ráðhúsi Barselóna í morgun að viðstöddum fjölda blaða- og fréttamanna.

Í máli borgarstjóra, Ödu Calou kom fram að viðbrögð íbúa borgarinnar við því að Reykjavík væri gestaborgin í ár hafi verið mjög sterk og jákvæð meðal borgarbúa, sem þekkja Reykjavík jafnvel enn betur en Ada hélt í upphafi.  

 La Mercè er skipulögð af menningarskrifstofu Barselóna og fer fram dagana 22. – 25. september. Hún er stærsta hátíð borgarinnar og á uppruna sinn að rekja til ársins 1871. Íslensku listamennirnir voru valdir til þátttöku af skipuleggjendum hátíðarinnar í samráði við Útón og Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkur.

Á hátíðinni koma fram flytjendur sem rappa, rokka og flytja klassíska tónlist og tóngjörninga. Fyrir hönd Íslands í Barselóna verða; Samaris, Kiasmos, Glowie, Emmsjé Gauti, Ólöf Arnalds, Grísalappalísa, Reykjavíkurdætur, JFDR, Guðrún Ólafsdóttir, Milkywhale, Halldór Mar, Ingvar Björn, Sigríður Soffía Níelsdóttir og sýningin Full Dome Show.  Auk þessa verða sýndar fjórar myndir, heimildarmynd Péturs Einarssonar um hrunið, Hross í oss, mynd Benedikts Erlingssonar, tónlistarmyndin Bakgarðurinn eftir Árna Sveinsson og að lokum myndin Bokeh eftir Geoffrey Orthwein og Andrew Sullivan sem er vísindaskáldskapur um amerískt par sem ferðast til Íslands.

Hátíðin er árlegur viðburður. Menning og listir verða í fyrirrúmi og fjöldi listamanna koma að dagskránni þar sem kennir ýmissa grasa.  Borgin fyllist af tónlist, dans og götulist. Umgjörðin eru sögufrægir staðir í Barselóna auk þess sem hátíðin teygir anga sín út í hin ýmsu hverfi með þátttöku borgarbúa og gesta.

Líklegt er að á aðra milljón gesta sæki hátíðina heim og Reykjavíkurborg fetar hér í fótspor menningarborga eins og Stokkhólms, Parísar og London en þær hafa allar verið gestaborgir La Mercé menningarhátíðarinnar.

Meira um La Mercé