Reglur um afnot af borgarlandi vegna skilta og útstillinga

Framkvæmdir

""

Kynningarfundur um drög að reglum um afnot af borgarlandi vegna skilta og útstillinga 23. febrúar.

Kynningarfundur fyrir hagsmunaaðila um drög að reglum um afnot af borgarlandi vegna skilta og útstillinga verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar kl. 16:00 - 17:00 í Borgartúni 12 á sjöundu hæð í Kerhólum. Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, byggingarverkfræðingur kynnir reglurnar

Markmið reglnanna er að:

  • Tryggja aðgengi og öryggi allra sem ferðast um borgarlandið.
  • Tryggja samræmd vinnubrögð þegar óskað er eftir afnotum af borgarlandi fyrir skilti og útstillingar, til lengri eða skemmri tíma.
  • Útstillingar, til lengri eða skemmri tíma.
  • Einfalda og skýra þær reglur sem gilda um skilti og útstillingar í borgarlandinu.
  • Gæta og varðveita ásýnd borgarinnar.

Reglurnar gilda um skilti á borgarlandinu sem og útstillingar. Með útstillingum er átt við t.d. fataslár, borð, blómaker, skilveggi og annað sem notað er í tengslum við verslun og þjónustu. Hér er ekki átt við útiveitingasvæði. Um útiveitingar gilda sérstakar reglur háðar útiveitingaleyfum.
Óskað er eftir skriflegum athugasemdum til 27. febrúar á netfangið afnotaleyfi@reykjavik.is

Tengill

Drög að reglunum