Öldungaráð Reykjavíkurborgar

Mannréttindi

""

Það var bjartsýnn og einbeittur hópur sem sat fyrsta fund öldungaráðs Reykjavíkurborgar í dag, 11. mars en það verður nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um málefni og hagsmuni borgarbúa sem eru 67 ára og eldri.

Ráðið mun stuðla að upplýsingagjöf og samstarfi Reykjavíkurborgar við hagsmunasamtök hópsins, móta  stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varðar verksvið þess.

Öldungaráð er skipað fimm fulltrúum og jafnmörgum til vara.  Guðrún Ágústsdóttir er formaður ráðsins en hún og Kjartan Magnússon eru skipuð af borgarstjórn,  fulltrúar frá Félagi eldri borgara eru Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir og Hrafn Magnússon og að lokum situr Sveinn Grétar Jónsson í ráðinu fyrir Samtök aldraðra. Starfsmenn ráðsins eru Anna Kristinsdóttir mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar og Jóna Vigdís Kristinsdóttir verkefnastjóri á mannréttindaskrifstofu.

Varamenn ráðsins eru Helga Kristín Hjörvar, Áslaug Friðriksdóttir, Bryndís Hagan, Brynjólfur I. Sigurðsson og Ingólfur Antonsson.

Öldungaráð á vef Reykjavíkurborgar.

Fyrsti sameiginlegi fundur öldungaráðs Reykjavíkurborgar og borgarstjórnar 22. september kl.14.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Þann 22. september verður haldinn fyrsti sameiginlegi fundur öldungaráðs Reykjavíkurborgar og borgarstjórnar. Fundurinn verður í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og hefst kl. 14.00 með ávarpi borgarstjóra.

Hér er auglýsing fundarins á pdf formi