Nýtnivika beinir athygli að matarsóun

Umhverfi Mannlíf

""

Nýtnivikan verður haldin í Reykjavík vikuna 22. - 30. nóvember 2014. Markmið vikunnar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Þetta er í þriðja sinn sem Nýtnivika fer fram hér á landi og þema vikunnar að þessu sinni er að draga úr matarsóun. Matarsóun er fjárhagslegt, samfélagslegt og umhverfislegt vandamál sem mikilvægt er að taka á.

Lýst er eftir viðburðum í Nýtniviku

Lýst er eftir þátttakendum og viðburðum sem tengjast því að draga úr matarsóun. Áhugasamir eru hvattir til að setja upp viðburð eða láta vita af viðburði sem fer fram á meðan á Nýtnivikunni stendur og tengist matarsóun á einhvern hátt. Hægt er að skrá viðburðinn (viðburðina) beint á vefsíðu evrópsku nýtnivikunnar eða senda póst á netfangið nytnivika@reykjavik.is  Skráðir viðburðir verða birtir á vefsíðu Reykjavíkurborgar og kynntir þar.

Zero Waste hópurinn (Landvernd, Kvenfélagasamband Íslands og Vakandi) og Norræna húsið standa fyrir málþingi um matarsóun 25. nóvember.

Reykjavíkurborg stendur fyrir ljósmyndasamkeppni þar sem þemað er „nýtum matinn betur“. Þar geta allir tekið þátt og sett inn mynd sem lýsir góðri nýtingu á mat  eða frumleg hugmynd að því hvernig gott er að nýta matarafganga.  Leiðbeiningar vegna keppninnar verða kynntar nánar á reykjavik.is

Reykjavíkurborg hvetur alla til að draga úr matarsóun og nýta matinn betur. Hér að neðan eru nokkur heilræði sem hægt er að styðjast við.

Áður en þú ferð út í búð:

  • Skrifaðu niður innkaupalista. Vertu viss um að kaupa aðeins það sem þú þarft til að koma í veg fyrir kaup á mat sem rennur út áður en hans verður neytt.
  • Skoðaðu í skápana og ísskápinn áður en þú ferð. Þá færðu tilfinningu fyrir hvaða matur er til á heimilinu og hvað vantar.
  • Sestu niður með fjölskyldunni og gerið saman matseðil fyrir vikuna. Þetta kemur í veg fyrir innkaup á óþarfa mat.

Í búðinni:

  • Mundu eftir að fara eftir innkaupalistanum og ekki fylla körfuna af mat sem þú þarft ekki á að halda. Innkaup á mat á tilboðsverði er bara ódýrara ef maturinn nýtist.
  • Velja mat eftir magni þar sem kostur er, t.d. kauptu grænmeti og ávexti í stykkjatali eða kauptu kjöt og fisk eftir þyngd. Þannig minnka umbúðir sem fylgja þér heim og auðveldara er að velja það magn sem þú þarft.
  • Líttu á hvenær vara rennur út.
  • Búðarferð er best á fullum maga. Smá snarl áður en haldið er í búðina dregur úr líkum á því að einhver óþarfi sé keyptur.

Þegar þú kemur heim:

  • Gott er að skipuleggja skápana og ísskáp og gæta þess að geyma vörur á réttum stað við rétt hitastig.
  • Settu nýjustu vöruna aftast og eldri birgðir af mat fremst.
  • Það er auðvelt að nýta matarafganga. Ef þú ert ekki viss hvernig best er að nýta afganga er hægt að skrá sig á námskeið hjá Zero Waste hópnum gegn vægu gjaldi sem heitir„Eldað úr öllu með kvenfélögunum og Dóru“. Nánari upplýsingar á vef leiðbeiningarstöðvar heimilanna.
  • Gott er að eiga plastbox, glerkrukkur eða önnur ílát sem handhægt er að setja matarafganga í til geymslu eða til að taka með sér í skólann eða vinnuna.