Nýr skólastjóri við Foldaskóla

Skóli og frístund

""

Skúli Kristjánsson hefur verið ráðinn skólastjóri við Foldaskóla frá og með næsta skólaári. 

Skúli hefur lokið diplóma í skólastjórnun frá  Universitetet i Oslo og hefur starfað sem grunnskólakennari, deildarstjóri og  aðstoðarskólastjóri, nú síðast í Noregi.

9 umsækjendur voru um stöðu skólastjóra í Foldaskóla en umsóknarfrestur rann út 18. júní 2017.