Nýbygging við Tryggvagötu 13

Skipulagsmál

""

Borgarbókasafn Reykjavíkur fær stærra rými í nýrri sex hæða byggingu sem mun rísa við Tryggvagötu 13. Þar mun einnig verða verslunar- og þjónustuhúsnæði á fyrstu hæð auk íbúða og skrifstofurýmis á efri hæðum.

Borgarráð hefur staðfest breytingu deiliskipulags fyrir lóðina við Tryggvagötu 13 en þar stendur til að reisa sex hæða byggingu. Í breytingunni felst að horfið er frá fyrirhugaðri notkun hússins sem þjónustu-, skrifstofu- og gistihúss.

Í húsinu mun verða þjónusta á jarðhæð auk þess sem Borgarbókasafn Reykjavíkur fær stærra húsnæði.

Húsið verður í samræmi við byggingar sem fyrir eru á reitnum og mun rúma aukna starfsemi og þjónustu Borgarbókasafnsins auk þess sem aðgengismál verða stórbætt í safninu. Skipulagsyfirvöld telja að að stærð og hlutföll viðbyggingarinnar bjóði upp á spennandi arkitektúr með útsýni yfir höfnina og að mikil prýði verði af torgi sem verður á reitnum Tryggvagötumegin.
Í húsinu verður verslunar- og þjónusturými á  fyrstu hæð en skrifstofur og íbúðir á annarri til sjöttu hæð. 

Tillagan var auglýst frá 23. desember 2013 til 3. febrúar 2014 en að auki var haldinn kynningarfundur þar sem 38 eigendum fasteigna í nálægð við reitinn var boðið að koma. Tillagan var að auki auglýst á vef Reykjavíkurborgar og til sýnis í þjónustuveri  Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12 - 14 á meðan auglýsingu stóð.

Ein athugasemd við skipulagið barst frá Íbúasamtökum Vesturbæjar.

Tryggvagata 13 skýringaruppdráttur.