Ný umferðarljós á gatnamótum Hallsvegar og Strandvegar

Framkvæmdir Samgöngur

""

Á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar, verða umferðarljós á gatnamótum Hallsvegar og Strandvegar í Grafarvogi endurnýjuð.  Slökkt verður tímabundið á ljósunum eftir kl. 9.00 þegar morgunumferðin er að mestu gengin niður.

Gert er ráð fyrir að ljósin verði óvirk fram eftir degi og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát á gatnamótunum og taka mið af lækkuðum umferðarhraða.

Settur verður upp nýr búnaður svokölluð LED ljós og stjórnkassi uppfærður og tengdur miðlægri stýringu umferðarljósa.