Mikil sala á lóðum í Úlfarsárdal

Stjórnsýsla Umhverfi

""
Sala byggingarréttar í Úlfarsárdal tók mikinn kipp í nýliðnum mánuði en alls úthlutaði borgarráð 19 lóðum með byggingarrétti fyrir 48 íbúðir.  Langflestar lóðirnar eru fyrir rað- og parhús. 
 
Eftir þessa úthlutunarhrinu eru einungis eftir ein parhúsalóð og 51 einbýlishúsalóð í Úlfarsárdal, sem og 28 einbýlishúsalóðir í Reynisvatnsási.
 
Nokkuð er síðan síðustu fjölbýlishúsalóðirnar í Úlfarsárdal seldust og eru framkvæmdir á þeim komnar vel á veg. Þá eru tvær fjölbýlishúslóðir við Urðarbrunn fráteknar samkvæmt ákvörðun borgarráðs fyrir leiguíbúðir. Ákvörðun um úthlutun þeirra hefur ekki verið tekin.
 
Borgin byggir upp í Úlfarsárdal

Í Úlfarsárdal er Reykjavíkurborg með mikla uppbyggingu, en fyrsta skóflustunga að nýjum skóla var tekin í haust og verður fyrsti áfangi hans tekinn í notkun að ári.  Nýi skólinn er hluti af stærsta nýbyggingarverkefni borgarinnar á næstu árum, en auk leik- og grunnskóla, verður frístundaheimili, almenningsbókasafn, menningarmiðstöð, sundlaug og íþróttahús byggð neðst í dalnum.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum 15. október að deiliskipulag Úlfarsárdals verði endurskoðað í samræmi við forsendur aðalskipulags Reykjavíkur 2010 – 2030 um fjölgun íbúða og uppbyggingu og stækkun Úlfarsárdalshverfis í samræmi við skipulagslýsingu fyrir breytingu á deiliskipulagi svæðisins.
 

Nánari upplýsingar: