Lengri vinnudagar vegna mikils magns af sandi á götum

Umhverfi Framkvæmdir

""

Vinna við hreinsun gatna og gönguleiða gengur hægar en undanfarin ár vegna gríðarlegs sandmagns á stéttum og stígum sem dreift var á gönguleiðir til hálkuvarna í vetur. 

Starfsmenn verktaka hafa því orðið að vinna lengri vinnudaga en áætlað var. Forsópun (fyrri umferð) tefst í Hliðunum, Lauganeshverfi og Bökkunum og Hólunum í Breiðholti frá því sem áætlað hafði verið.  Í miðborginni gekk einnig hægar þar sem bílum var lagt jafnóðum í stæði þó búið væri að setja upp skilti við götur.

Þrátt fyrir þessar tafir seinkar verkinu ekki í heild. Hreinsun gatna og stíga í borginni á að vera lokið fyrir 13. júní. 

Nánari upplýsingar s.s. uppfærð tímaáætlun hreinsunar eru á vefsíðunni reykjavik.is/hreinsun.

Verkstaða hreinsunar gatna í dag:

Verkstaða hreinsunar stíga í dag: