Kvikmyndaver í Gufunesi

Umhverfi Skipulagsmál

""
Borgarráð samþykkti í dag tillögu borgarstjóra um að ganga til viðræðna við RVK Studios um alhliða kvikmyndaver sem verður hluti af framtíðarmynd Gufuness og ein af forsendum í skipulagssamkeppni sem efnt verður til. Ákvörðunin tekur jafnframt mið af tillögum stýrihóps um nýtingu svæðisins og viðbrögðum við auglýsingu Reykjavíkurborgar frá í sumar.
Baltasar Kormákur og stjórnendur RVK Studios óskuðu í sumar eftir viðræðum um kaup á hluta af gömlu Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi og úthlutun lóðar við húsið með það fyrir augum að byggja upp aðstöðu fyrir kvikmyndastarfsemi.

„Kvikmyndaver í Reykjavík mun stuðla að fjölgun verkefna og efla reynslu íslenskra kvikmyndagerðarmanna. Með fleiri verkefnum eflist stöðugleiki í iðnaðinum, auk þess að til verður áhugaverður kostur fyrir hæfileikafólk sem hingað til hefur að mestu fundið verkefni við hæfi erlendis. Kvikmyndaver í Reykjavík mun þannig styrkja stoðir íslenskrar kvikmyndagerðar og framleiðslu sjónvarpsefnis og auka samkeppni á alþjóðlegum markaði,“ segir í erindinu.

Borgarráð samþykkti að fela skrifstofu eigna og atvinnuþróunar að ganga til viðræðna við RVK Studios á grundvelli fyrirliggjandi mats á verðmæti eignanna. Samhliða verða teknar upp viðræður við Íslenska gámafélagið um flutning þess af svæðinu og er það í samræmi við ákvæði í leigusamningi. Leitað verður að lausn sem hentar báðum aðilum og er til skoðunar að Esjumelar á Kjalarnesi verði athafnasvæði Íslenska gámafélagsins þegar leigutími þess rennur út í lok árs 2018.
 
Tengt efni: