Kvennafrí mánudaginn 24. október

Stjórnsýsla Velferð

""

Búast má við að konur skundi á Austurvöll á mánudag á samstöðufund um launajafnrétti. Foreldrar eru því beðnir um að sækja leikskólabörn fyrir kl. 14.30 eftir því sem kostur er. 

Samstöðufundurinn hefst kl. 15.15 en konur eru hvattar til að leggja niður störf kl.14.38 til að sýna fram á kynbundið launamisrétti. Gera má ráð fyrir víðtækri þátttöku kvenna og að röskun verði því víða í starfsemi borgarinnar, t.d. í skóla- og frístundastarfi og eru foreldrar beðnir um að huga að því.