Krás í Fógetagarði

Mannlíf

""
KRÁS götumatarmarkaður opnar á laugardaginn kl. 13:00. Í ár verður KRÁS opin alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 13:00-18:00 og lýkur 20 .ágúst á Menningarnótt. 
Á Krás selja kokkar frá ýmsum veitingastöðum borgarinnar lostæti undir berum himni. Hægt er að setjast niður, fá sér rósa- og freyðivínsglas og njóta kræsinga á staðnum eða taka með sér heim ef fólk vill það frekar.
 
Markmiðið með markaðinum er fyrst og fremst að gæða miðborgina enn meira lífi.  Markaðurinn er unnin í samvinnu við Reykjavíkurborg og er hluti af Torg í biðstöðu verkefni borgarinnar. Þverfaglegur hönnunarhópur á vegum borgarinnar sér allt heildarútlit markaðarins, bása, bekki og borð.
Hægt er að fylgjast með Krás á  facebook síðu hátíðarinnar