Íþróttafólk Reykjavíkur 2014

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Tilkynnt var um val á Íþróttafólki Reykjavíkur í dag. Í tilefni dagsins bauð borgarstjórinn, Dagur B. Eggertsson, til móttöku í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur valið Íþróttamann Reykjavíkur og var þetta því í 36.sinn sem hátíðin fór fram. Í ár voru í annað sinn kjörin Íþróttakarl og Íþróttakona Reykjavíkur auk þess sem að Íþróttalið ársins í Reykjavík var valið.

Íþróttakarl Reykjavíkur 2014 er körfuknattleiksmaðurinn Martin Hermannsson úr KR en hann varð Íslandsmeistari með KR liðinu í ár ásamt því að vera í landsliði Íslands sem tryggði sér þátttökurétt í úrslitakeppni EM í fyrsta skipti í sögunni. Íþróttakona Reykjavíkur 2014 er sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Sundfélaginu Ægi sem er í 11.sæti á heimslistanum og 5.sæti á Evrópulistanum í 200 m baksundi í 25 metra laug. Íþróttalið Reykjavíkur 2014 er lið Vals í handknattleik kvenna sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari á árinu.

Tíu einstaklingar og tíu lið frá sjö félögum voru verðlaunuð fyrir frábæran árangur á árinu 2014 í dag.

Liðin sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2014:

• ÍR - Bikarmeistarar í frjálsum íþróttum karla og kvenna
• ÍR - Íslands- og bikarmeistarar í keilu karla
• Júdófélag Reykjavíkur - Bikarmeistarar í sveitakeppni karla
• Keilufélag Reykjavíkur - Íslands- og bikarmeistarar í keilu kvenna
• KR - Bikarmeistarar í knattspyrnu karla
• KR - Íslandsmeistarar í körfuknattleik karla
• TBR - Íslandsmeistarar í liðakeppni beggja kynja í badminton
• Valur - Íslands- og bikarmeistarar í handknattleik kvenna
• Víkingur - Íslandsmeistarar í karlaflokki í karate
• Víkingur - Íslands- og bikarmeistarar í liðakeppni karla og kvenna í borðtennis

Einstaklingarnir sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2014:
• Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR          
• Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Sundfélaginu Ægi
• Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni
• Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Sundfélaginu Ægi
• Helga María Vilhjálmsdóttir, skíðakona úr ÍR
• Helgi Sveinsson, frjálsíþróttamaður úr Ármanni
• Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni
• Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingamaður úr Ármanni
• Martin Hermannsson, körfuknattleiksmaður úr KR
• Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR 

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson og formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvar Sverrisson, afhentu íþróttafólkinu og forsvarsmönnum íþróttafélaganna verðlaunin í dag.