Innköllun á vatni Energy for you Nanoclustered Water og Wayback Water

Heilbrigðiseftirlit

""

Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallar frá neytendum drykki undir heitinu ENERGY FOR YOU Nanoclustered Water og WAYBACK WATER - Energy For You Nanoclustered Water.

Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur ákveðið að innkalla frá neytendum vörurnar Energy For You Nanoclustered Water og Wayback Water - Energy For You Nanoclustered Water þar sem fram hefur komið að þær eru framleiddar af fyrirtæki án starfsleyfis og við aðstæður sem samræmast ekki lögum um matvæli nr. 93/1995 og reglugerðum settum með stoð í þeim.  Þetta gerir það að verkum að ekki er hægt að fullyrða að vörurnar séu öruggar til neyslu.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti:  Vörunni hefur verið dreift með tveimur mismunandi merkimiðum; Energy For You Nanoclustered Water eða Wayback Water - Energy For You Nanoclustered Water.
Framleiðandi:  Energy for you ehf. (þessar upplýsingar vantar á vörurnar).
Framleiðsluland:  Ísland.
Dreifing:  Samkvæmt upplýsingum sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur fengið hafa þessar vörur verið seldar í Heilsutorgi Blómavals og Lyfsalanum Glæsibæ. Einnig hafa borist upplýsingar um að vörunum hafi verið dreift í beinni sölu til einstaklinga en það hefur ekki verði staðfest af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Þeim sem keypt hafa þessar vörur er bent á að neyta þeirra ekki og farga eða skila þeim til þeirrar verslunar þar sem þær voru keyptar.