Innköllun á Rapunzel Tahin Sesammus

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.

Efni:  Innköllun á Rapunzel Tahin Sesammus (brún).

Innnes ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Rapunzel Tahin Sesammus (brún) þar sem að Salmonella greindist í vörunni .

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Rapunzel.
Vöruheiti:  Tahin Sesammus (brún).
Strikanúmer:  4006040004011.
Best fyrir:  Allar best fyrir dagsetningar.
Nettóþyngd:  250 g.
Framleiðandi:  Rapunzel Naturkost.
Framleiðsluland:  Þýskaland.
Dreifing:  Verslanir um land allt.

Þeim sem keypt hafa þessa vöru er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.  Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Innness ehf. í síma 660 4033 eða á netfanginu hjr@innnes.is.