Innköllun á Gestus sólberjasaft

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Innköllun á Gestus sólberjasaft.
Kaupás ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað tvenns konar Gestus sólberjasaft vegna myglu. 
 
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
 
Vörumerki:  Gestus.
 
Vöruheiti:  Solbærsaft light og Solbærsaft.
 
Strikanúmer:  5701410372194 (Solbærsaft light) og 5701410372187 (Solbærsaft).
 
Nettómagn:   1 l.
 
Best fyrir dagsetningar:  Solbærsaft light: 14.06.2016 and 15.06.2016.  Solbærsaft: 15.06.2016, 16.06.2016 og 17.06.2016. 

Lotunúmer:  Solbærsaft light: L5166 and L5167.  Solbærsaft: L5167, L5168, L5169 and L5170. 

Framleiðandi:  Danish Bottling A/S, Danmörku.

Innflytjandi:  Kaupás ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.

Dreifing:  Allar verslanir Krónunnar, Kjarvals & Nóatún Austurveri. Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í framangreindum verslunum er bent á að skila þeim í viðkomandi verslun.