Íbúafundur Hverfisráðs Vesturbæjar um strætósamgöngur

""

Það var fín mæting þegar Hverfisráð Vesturbæjar hélt íbúafund miðvikudaginn 27. maí sl. þar sem íbúar í Vesturbæ gátu komið með tillögur af því hvernig þeir vildu sjá strætó keyra um hverfið sitt. 

Eins og gefur að skilja voru margar hugmyndir ræddar og var unnið á borðum þar sem fólk gat teiknað inn sínar óskir um það hvernig það vildi sjá strætóaksturinn um Vesturbæinn. 

Í frarmhaldi mun Hverfisráð Vesturbæjar vinna úr gögnunum sem settar voru á blað og koma þeim áleiðis til Strætó.