Hreinsunardagur verður í Breiðholti laugardaginn 5. maí
Hverfisráð Breiðholts ákvað á 83. fundi sínum fimmtudaginn 12. apríl síðastliðinn að hreinsunardagur í Breiðholti 2012 verði laugardaginn 5. maí kl. 11.00 - 14.00. Hverfisráð skipaði nefnd til að skipuleggja og undirbúa verkið.
Nefndina skipa: Lárus Rögnvaldur Haraldsson, Sveinn Hlífar Skúlason, Helgi Kristófersson, Birna Magnúsdóttir og Ágústa H. Gísladóttir.
Nefndin ákvað á fundi sínum:
Opnu svæðin sem áhersla verður á í ár:
- Bak við Breiðholtslaug; frá Fellaskóla upp að Hólabrekkuskóla og stígur frá sjoppunni upp á Markúsartorg við Gerðu-, Mið- og Iðjuberg.
- Frá Seljaskóla niður að ÍR.
- Miðsvæðið í Arnarbakka.
Ábyrgðamenn söfnunarsvæða og afhending plastpoka:
Í Efra verður söfnunarsvæði á bílastæðinu við Iðjuberg/Miðberg.
Ábyrgðamenn: Sveinn Hlífar Skúlason, Birna Magnúsdóttir og Ragnhildur B. Guðjónsdóttir.
Í Seljum verður söfnunarsvæði við félagsmiðstöðina Hólmasel.
Ábyrgðarmenn: Jarþrúður Ásmundsdóttir, Falasteen Abdu Libdeh og Lárus Rögnvaldur Haraldsson.
Í Bökkunum verður söfnunarsvæði við hringtorgið við Breiðholtsskóla.
Ábyrgðarmenn: Elsa H. Yeoman, Erla Þórðardóttir og Þorkell Ragnarsson.