Hækkun á styrk svifryks við umferðargötur

Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Líklegt er að styrkur svifryks (PM10) fari í dag, 1. nóvember, yfir sólarhringsmörk skv. mælingum við Grensásveg.

Í dag er hægur vindur, götur þurrar og litlar líkur á úrkomu fyrr en eftir miðnætti. Klukkan 11:30 var hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi 67, 45 míkrógrömm á rúmmetra en sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Bent skal á að svifryksmengun er mest í nágrenni við miklar umferðargötur en minni mengun er inn í íbúðarhverfum fjær umferð.  Í hægum vindi þyrlast ryk upp af götum og má búast við toppum í svifryksmengun á umferðarálagstímum á morgnanna, í hádeginu og í eftirmiðdaginn.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á www.reykjavik.is/loftgaedi en þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. mælistöð á Grensásvegi. Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er að þessu sinni staðsettar annars vegar við Rofabæ og hins vegar á lóð leikskólans Grænuborgar við Eiríksgötu.