Fyrirtæki Baltasars kaupir byggingarrétt í Gufunesi

Framkvæmdir Skipulagsmál

""

Borgarráð samþykkti á aukafundi í morgun að heimila sölu á lóðum og byggingarrétti í Gufunesi til GN Studios, fyrirtæki Baltasars Kormáks sem hyggur á enn meiri umsvif á svæðinu.

Salan er liður í því að koma upp kvikmyndaþorpi og eins konar miðstöð skapandi greina í Gufunesinu í bland við íbúðabyggð og þjónustu.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Baltasar Kormákur undirrituðu samninginn í gær með fyrirvara um samþykki borgarráðs.

Samningurinn þýðir að ef allt gengur eftir mun Gufunesið byggjast upp hratt og örugglega en fyrirtæki í kvikmyndaiðnaði hafa sýnt svæðinu talsverðan áhuga.

Kaupverð byggingarréttarins hljóðar upp á 1.290 milljónir króna. Um er að ræða rúmlega 4.000 fermetra atvinnustarfsemi og 25.000 fermetra af íbúðarhúsnæði eða nærri 30.000 fermetrar samanlagt. Fyrirvari er gerður um samþykkt deiliskipulags fyrir svæðið. Þá mun kaupverðið breytast hlutfallslega til hækkunar eða lækkunar miðað við endanlegt byggingarmagn í samþykktu deiliskipulagi. Gatnagerðargjald greiðist við samþykkt byggingarnefndarteikninga samkvæmt gildandi gjaldskrá hverju sinni. Áætlað er að gatnagerðargjald verði um 350 milljónir króna miðað við núgildandi gjaldskrá.

Samningurinn hljóðar því í heild upp á 1.640 milljónir króna.

Aðdragandinn að kaupsamningnum nú er sá að GN Studios keypti skemmur og fasteignir gömlu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi auk lóðarréttinda í lok maí 2016 með það fyrir augum að þar myndi þróast kvikmyndagerð og skyld starfsemi auk verslunar, þjónustu og íbúða. Hófst þá undirbúningur að deiliskipulagi  sem byggir á arkitektasamkeppni sem haldin var um svæðið. Síðan hafa síðan fyrirtæki í skyldri starfsemi ýmist fest kaup á eignum þarna eða fengið vilyrði um lóðir.

Reykjavíkurborg veitir GN Studios tíu prósent afslátt af verði byggingarréttar frá verðmati sem tveir fasteignasalar gerði. Afslátturinn er veittur vegna frumkvæðis- og frumkvöðlastarfs stúdíósins og með tilliti til viðamikillar fjárfestingar þess á svæðinu.

Talið er hagstætt fyrir Reykjavíkurborg og skapandi greinar í borginni að festa uppbyggingu svæðisins enn frekar í sessi samkvæmt greinargerð skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar sem annaðist samningsgerðina.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði á móti samningnum í borgarráði í morgun og því bíður staðfesting hans samþykktar borgarstjórnar á fyrsta fundi eftir áramót. Það þýðir að kaupverðið gjaldfærist ekki fyrr en á næsta ári.