Foreldrar sæki börnin sín í skóla- og frístundastarf

Skóli og frístund

""

Vegna óveðurs sem nú geisar á höfuðborgarsvæðinu eru foreldrar og forráðamenn grunnskólabarna beðnir um að tryggja að börn verði sótt í skólana í lok skóladags. 

 

Vegna óveðurs sem nú geisar á höfuðborgarsvæðinu hefur verklag um röskun á skólastarfi verið virkjað varðandi skólalok. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að tryggja að börn sín verði sótt í skólana í lok skóla- og frístundastarfs í dag, þannig að þau séu ekki ein á ferðinni í óveðrinu. Jafnframt hafa skólar verið beðnir um að tryggja að börn yfirgefi ekki skólana nema í fylgd með fullorðnum.

Nánari upplýsingar eru á www.shs.is.