Ertu með góða hugmynd fyrir Menningarnótt?

Mannlíf Menning og listir

""
Menningarnótt verður haldin í 21. skipti þann 20. ágúst næstkomandi. Höfuðborgarstofa og Landsbankinn auglýsa eftir umsóknum í Menningarnætupottinn en umsóknarfrestur er til og með 31. maí á vefnum Menningarnott.is. 
Í ár verður áhersla lögð á að styrkja skemmtilega og frumlega viðburði sem tengjast Grandasvæðinu við gömlu höfnina, það er þó ekki skilyrði. Veittir verða styrkir á bilinu 50.000-250.000 kr. til einstaklinga og hópa.
 
Höfuðborgarstofa og Landsbankinn hafa skrifað undir nýjan samning til þriggja ára en Landsbankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur
frá upphafi. Allur fjárstuðningur bankans, sem samsvarar þremur og hálfri milljón kr. rennur óskertur til listamanna og skapandi einstaklinga eða hópa sem koma fram á Menningarnótt.

Menningarnótt hefur fest sig í sessi sem ein helsta hátíð Reykjavíkur en á síðasta ári er talið að um 120.000 gestir hafi lagt leið sína í miðborgina þennan dag. Menningarnótt fer fram á torgum og götum, í bakgörðum og söfnum, í fyrirtækjum og heimahúsum. Yfirskrift hátíðarinnar er „gakktu í bæinn!“ sem vísar til þeirrar gömlu og góðu hefðar að bjóða fólk velkomið og gera vel við gesti. Menningarnótt er þátttökuhátíð sem byggir á framlagi fjölda aðila sem standa að menningarlífi í borginni og annarra sem nota þetta tækifæri til að setja svip sinn á borgarlífið.

Markmið Menningarnætur er að hvetja borgarbúa til að taka þátt í menningarviðburðum og beina kastljósinu að því fjölbreytta og ríkulega framboði af menningarviðburðum- og starfsemi sem borgin hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar um styrki hátíðarinnar veita Guðmundur Birgir Halldórsson verkefnastjóri viðburða Höfuðborgarstofu, gudmundur@visitreykjavik.is eða Berghildur E. Bernharðsdóttir kynningarstjóri Höfuðborgarstofu, berghildur@visitreykjavik.is í síma 590-1500.