Bútasaumssýning í Vesturreitum 3.-11. maí

Velferð Menning og listir

""

Handverkshópurinn Vinabandið heldur sýningu á bútasaumsteppum í félagsmiðstöðinni Vesturreitum, Aflagranda 40, dagana 3.-11.maí næstkomandi.

Teppin eru „sýnishornateppi“, hvert teppi er 20 blokkir og hver blokk er unnin með sérstakri saumaaðferð. Sjón er sögu ríkari!

Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 9:00-16:00 og laugardaga og sunnudaga kl. 13:00-17:00 á meðan á henni stendur.
 

Kaffistofan verður opin 9:00-15:30 virka daga og 13:00-16:30 um helgar. Verið velkomin.