Borgin greiddi Brú 14,6 milljarða króna

Fjármál Stjórnsýsla

""

Reykjavíkurborg greiddi Brú lífeyrissjóði 14, 6 milljarða króna síðasta virka dag nýliðins árs til að gera upp áfallnar lífeyrisskuldbindingar upp á 3,5 milljarða og áætlaðar framtíðarskuldbindingar upp á 10 milljarða auk framlags í varúðarsjóð upp á einn milljarð.

Greiðsla lífeyrisskuldbindinganna er í samræmi við þær skyldur sem Alþingi samþykkti á ríki og sveitarfélög með setningu laga nr. 127/2016 þegar lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins var breytt en sú lagabreyting hafði einnig áhrif á A deild Brúar lífeyrissjóðs frá 1. júní 2017 sem kallaði á framlög launagreiðenda til A deildar sjóðsins. Með þessu hefur Reykjavíkurborg að fullu staðið við sitt í þessum efnum.

Borgarsjóður reiddi fram 9,8 milljarða úr borgarsjóði með handbæru fé frá rekstri. Auk þess var tekið 4,9 milljarða lán vegna uppgjörsins og voru kjörin þau bestu sem borgin hafði fram að þeim tíma fengið í þessum skuldabréfaflokkum eða 2,74% verðtryggðir vextir og 5,20% óverðtryggðir vextir. Sparnaður borgarsjóðs með því að fjármagna greiðsluna með þessum hætti í stað þess að taka lán hjá Brú er um 500 milljónir að núvirði. Í síðasta skuldabréfaútboði borgarinnar var ávöxtunarkrafan orðin enn hagstæðari eða 2,58% á nýjum 15 ára verðtryggðum skuldabréfaflokki. Þau vaxtakjör sem borgarsjóður nýtur endurspeglar sterkan rekstur borgarsjóðs og traust lánardrottna á fjármálastjórn borgarinnar. Þá gerði sterk staða borgarsjóðs það að verkum að hægt var að reiða fram 9,8 milljarða og ekki þurfti að taka meira að láni en raun ber vitni.