Borgarstjóri sendir samúðarkveðju til Lundúna

Mannlíf Mannréttindi

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sent Sadiq Khan, borgarstjóra Lundúna, samúðarkveðju vegna voðaverkanna sem framin voru þar í borg í gærkvöldi. 

Í samúðarkveðjunni frá Reykvíkingum segir m.a. að sem fyrr verðum við sameinuð að standa vörð um hið frjálsa lýðræðislega samfélag, réttlæti og umburðarlyndi og gegn haturs- og voðaverkum eins og þeim sem framin voru í Lundúnum í gærkvöldi.

Hugur okkar er hjá fórnarlömbum árásanna, fjölskyldum þeirra, ástvinum og Lundúnarbúum öllum, segir í kveðjunni.

Sjá samúðarkveðjuna.