Birkimelur í nýjan búning

Framkvæmdir Samgöngur

""

Birkimelur verður færður í nýjan búning í sumar en þar stendur til að endurnýja göngu- og hjólastíg vestan megin götunnar, auk þess sem lýsing verður endurnýjuð vegna götunnar.

Birkimelur, frá Hringbraut að Hagatorgi, er fjölfarin leið gangandi og hjólandi vegfarenda en börn nýta götuna mikið til að komast til og frá skóla en bæði Haga- og Melaskóli eru í nágrenni Hagatorgs. Þá er talsverð umferð ferðamanna að Radisson Blu Hótel Sögu auk þess sem Þjóðarbókhlaðan stendur við götuna.

Í fyrra kom fram hugmynd frá íbúa um að endurnýja gangstétt og gera hjólastíg við Birkimel í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Hugmyndin hlaut brautargengi í kosningunum og var kosin til framkvæmda. Verja átti tíu milljónum til verkefnisins.

Umhverfis- og skipulagsráð ákvað að bæta um betur og ráðast í endurnýjun á lýsingu við götuna og leggja breiða göngu- og hjólaleið vestan megin götunnar. Til að framkvæma verkefnið á m.a. að ráðast í færslu á biðstöðvum Strætó við götuna og vinna á hæðarmun við blokkirnar sem standa við götuna til að stígurinn rúmist sem best. Að auki verður gróður endurnýjaður á nokkrum stöðum við götuna til að fegra hana og stofntré verða gróðursett. Eftir framkvæmdir ættu allir að hafa nóg pláss við götuna, gangandi, hjólandi og akandi auk þess sem öryggi allra vegfarenda ætti að batna. Hámarkshraði verður lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst. Aðstaða fyrir gangandi og hjólandi batnar til muna og hjólandi vegfarendur sem kjósa að hjóla á götunni verða öruggari en í dag.

Það sem verður framkvæmt við Birkimel í sumar er eftirfarandi.

  • Lagður fjögurra metra göngu- og hjólastígur vestan megin götunnar á milli Hringbrautar og Hagatorgs.
  • Núverandi gangstétt verður breikkuð í átt að lóðarmörkum til að gera pláss fyrir stíginn.
  • Mismunur í hæðarlegu við lóðar mörk er leystur með stoðveggjum þar sem þörf er á.
  • Tegingar við núverandi gangstétt verða að mestu óbreyttar, ýmist leystar með rampi eða þrepum.
  • Staðsetningu á innkeyrslu að bílastæði frá Birkimel er óbreytt en vegna hæðarlegur þarf að gera ramp inn á bílastæðið.
  • Aðlaga þarf hæðarlegu á einu til tveimur bílastæðum vegna nálægðar við rampa í innkeyrslu.
  • Núverandi ljósastaurum verður skipt út fyrir nýja sem eftir breytingu verða staðsettir í bakkanti gangstéttar.
  • Gert er ráð fyrir að gata verði óbreytt að mestu, en þrengingar verða settar í götu við biðstöðvar til að auka öryggi og bæta aðstöðu fyrir farþega Strætó. 
  • Hámarkshraði verður lækkaður úr 50 km/klst í 30 km/klst.