Aðstæður á tjaldsvæðinu í Laugardal

Velferð

""

Gert hefur verið við rafmagnstruflanir á tjaldsvæðinu í Laugardal en íbúar á svæðinu kvörtuðu yfir endurteknum rafmagnstruflunum þegar vettvangs- og ráðgjafateymi á vegum velferðarsviðs borgarinnar fór og kannaði aðstæður hjá íbúum á tjaldsvæðinu í Laugardal.

Að sögn Ámunda Brynjólfssonar hjá skrifstofu eigna og atvinnuþróunar verður bakvakt sett upp til að hægt verði að bregðast við frekari rafmagnstruflunum auk þess sem sótt hefur verið um stærri heimtaug til Veitna.

Vettvangs-og ráðgjafateymi velferðarsviðs kannaði aðstæður hjá 15 af þeim 17 íbúum sem dvelja á tjaldsvæðinu. Spurt var m.a. um hversu lengi viðkomandi hefði búið í þessum aðstæðum, hvert væri lögheimili og hvort viðkomandi myndi þiggja tilboð um leiguherbergi.

Eftir samtal við þessa einstaklinga er ljóst að fólk dvelur þarna af ólíkum ástæðum, flestir vegna erfiðra aðstæðna á leigumarkaði en aðrar ástæður voru einnig nefndar.

Fjórir af þessum einstaklingum eiga lögheimili í Reykjavík, tíu eru úr öðrum sveitarfélögum og hjá þremur er lögheimili óþekkt.

Einungis þrír kváðust þiggja tilboð um leiguherbergi. Tveir þeirra sem höfnuðu tilboði um leiguherbergi, myndu hugsanlega þiggja tilboð þar sem hægt væri að vera með hund.

Þegar fólk úr öðrum sveitarfélögum en Reykjavík var spurt hvers vegna það dvelur á tjaldsvæðinu í Laugardal en ekki í sinni heimabyggð var ástæðan fyrst og fremst sú að tjaldsvæði þar eru almennt lokuð á þessum árstíma. Flestir höfðu búið við þessar aðstæður frá því í sumar.

Allir íbúar á tjaldsvæðinu höfðu rafmagn til að kynda upp hjá sér en eins og fyrr segir þá kvörtuðu þeir yfir stöðugum rafmagnstruflunum. Einnig var kvartað undan slæmu aðgengi að salerni á næturnar.