Stafrænt ráð
Ár 2026, miðvikudaginn 25. febrúar, var haldinn 68. fundur stafræns ráðs. Fundurinn var haldinn á Höfðatorgi og hófst kl. 13:30. Eftirtalin voru komin til fundar í fundarherberginu Hofi: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Ásta Þ. Skjalddal Guðjónsdóttir og Einar Sveinbjörn Guðmundsson. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar: Árelía Eydís Guðmundsdóttir, Helga Margrét Marzellíusardóttir og Tinna Helgadóttir. Eftirtalinn embættismaður sat fundinn: Óskar J. Sandholt.
Fundarritari var Eva Pandora Baldursdóttir.
Þetta gerðist:
-
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa í ungmennaráði Breiðholts um gervigreindarstefnu í skólastarfi, sbr. 8. lið fundargerðar borgarstjórnar frá 10. febrúar 2026, ásamt fylgigögnum. MSS26020046.
Hulda Valdís Valdimarsdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir og Jörundur Þór Hákonarson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Vísað til umsagnar skóla- og frístundasviðs og þjónustu- og nýsköpunarsviðs.
- kl. 13:35 tekur Þorkell Sigurlaugsson sæti á fundinum.
Stafrænt ráð leggur fram svohljóðandi bókun:
Frábær tillaga Reykjavíkurráðs ungmenna um gervigreindarstefnu var kynnt fyrir fundinum af Jörundi Þór Hákonarsyni, fulltrúa ungmennaráðs Breiðholts. Ljóst er að gagnlegt væri að skapa ramma í kringum notkun gervigreindar í skólastarfi, ekki síst út frá umhverfissjónarmiðum. Hjá Reykjavíkurborg hafa verið unnin tilmæli um hagnýtingu gervigreindar og búið er að skilgreina hlutverk gervigreindarfulltrúa. Þá er unnið að gerð verklagsreglna fyrir skólastarfið í samstarfi við Mixtúru. Vísindagarðar HÍ sem Reykjavíkurborg er aðili að vinnur svo að uppbyggingu gervigreindarseturs eins og vakin var athygli á á fundinum. Er því margt í bígerð hvað þetta varðar. Þjónustu- og nýsköpunarsviði og skóla- og frístundasviði er falið að vinna umsögn um tillöguna sem feli í sér hvernig heppilegast sé að taka málið áfram.
Fylgigögn
-
Fram fer kynning á ábatamati stafrænna verkefna og þróun í samskiptum við borgarbúa. ÞON26020003.
Arna Ýr Sævarsdóttir og Búi Bjarmar Aðalsteinsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Kynningu á forgangsröðun stafræns ráðs og stöðu þeirra verkefna er frestað. ÞON20060042.
-
Lögð fram heimildarbeiðni þjónustu- og nýsköpunarsviðs, dags. 30. janúar 2026, um að hefja vinnu við „Aðgang mála eftir 10. bekk – SkólaBúi“ ásamt fylgigögnum. Lagt er til að stafrænt ráð samþykki verkefnið og að það sé skilgreint í fyrsta forgangi. ÞON25040036.
Samþykkt.
Arna Ýr Sævarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 14:50
Dóra Björt Guðjónsdóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Einar Sveinbjörn Guðmundsson
Helga Margrét Marzellíusardóttir Tinna Helgadóttir
Þorkell Sigurlaugsson
PDF útgáfa fundargerðar
Stafrænt ráð fundargerð nr. 68