Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2026, fimmtudaginn 25. júní var haldinn 190. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:18. Friðjón R. Friðjónsson, Björn Gíslason, Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, Regína Ástvaldsdóttir og Safa Jemai sátu fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn Björn Atli Davíðsson starfsmaður borgarlögmanns. Helena Rós Sigmarsdóttir starfsmaður skrifstofu fjármálaþjónustu og ráðgjafar var einnig viðstödd fundinn. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson..
Þetta gerðist:
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK26040032 dags. 4. júní 2026 varðandi útboð 16304 Leikskólinn Grandaborg, kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda frá B.Ó. Smiðir ehf.
Samþykkt.Kristjana Birgisdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK25200079 dags. 22. júní 2026 varðandi útboð 16188 Hólabrekkuskóli, hús 3, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Tindhagur ehf.
Samþykkt.Guðni Guðmundsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt er fram erindi þjónustu- og nýsköpunarsviðs merkt ÞON26050011 dags. 1. júní 2026 varðandi útboð 16289 Endurnýjun á Atlassian samning, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Crayon Iceland ehf.
Samþykkt.Helga Sigrún Kristjánsdóttir, Eyvindur Elí Albertsson og Kristín Lilja Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 14:01
Friðjón R. Friðjónsson Björn Gíslason
Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir Safa Jemai
Regína Ásvaldsdóttir
PDF útgáfa fundargerðar
Innkaupa- og framkvæmdaráð 25.6.26 - prentvæn útgáfa