Innkaupa- og framkvæmdaráð - og framkvæmdaráð fimmtudaginn 21. maí 2026 nr. 188

Innkaupa- og framkvæmdaráð

Ár 2026, fimmtudaginn 21. maí var haldinn 188. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:04. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar:   Birkir Ingibjartsson, Sandra Hlíf Ocares, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og Árelía Eydís Guðmundsdóttir. Andrea Jóhanna Helgadóttir sat fundinn í fundarsal. Einnig sat fundinn með fjarfundarbúnaði Jón Páll Hilmarsson starfsmaður borgarlögmanns. Fundarritari var Hallgrímur Tómasson.

Þetta gerðist:

  1. Lagt er fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs merkt USK25040096 dags. 18. maí 2026 varðandi útboð 16302 Aðkomutorg og gatnahönnun á Reykjavegi, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Garðasmíði ehf.
    Samþykkt.

    Fulltrúi Pírata leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Pírata í innkaupa- og framkvæmdaráði brýnir að samkvæmt reglum um fjarfundasetu á fundum ráða og nefnda ber borgarfulltrúum að sitja einir í rými án aðkomu annarra einstaklinga. Æskilegt er að borgarfulltrúar fylgi settum reglum.

    Rúnar Gísli Valdimarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 13:22

Andrea Helgadóttir Birkir Ingibjartsson

Árelía Eydís Guðmundsdóttir Sandra Hlíf Ocares

Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs 21.05.2026 - Prentvæn útgáfa