Innkaupa- og framkvæmdaráð
Ár 2025, fimmtudaginn 10. júlí var haldinn 169. fundur innkaupa- og framkvæmdaráðs. Fundurinn var haldinn í Varmadal og hófst kl. 13:00. Eftirtaldir fulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 1. málsl. 1. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga sbr. 4. málsl. 1. mgr. 13. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar Andrea Helgadóttir, Björn Gíslason og Árelía Eydís Guðmundsdóttir. Kristinn Jón Ólafsson, Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns og sátu fundinn í fundarsal. Þá sat Þórhildur Lilja Ólafsdóttir, starfsmaður borgarlögmanns fundinn með fjarfundarbúnaði.
Fundarritari var Hallgrímur Tómasson
Þetta gerðist:
-
Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. júlí 2025, merkt USK25070079, þar sem lagt er til að gengi verði að tilboði lægstbjóðanda MG hús í útboði nr. 16161 – Leikskólinn Árborg- kennslustofur.
Samþykkt.
Gréta Þórsdóttir Björnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
-
Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 7. júlí 2025, merkt USK25070078, þar sem lagt er til að gengið verði að tilboði lægstbjóðanda Metatron ehf. í útboði nr. 16151– Æfingavöllur Víkings – Endurnýjun gervigrass.
Samþykkt.
Gréta Þórsdóttir Björnsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fylgigögn
Fundi slitið kl. 13:28
Andrea Helgadóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Björn Gíslason
Kristinn Jón Ólafsson
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð innkaupa- og framkvæmdaráðs frá 10. júlí 2025