Borgarráð - Borgarráð miðvikudaginn 15. apríl 2026 nr. 5820

Borgarráð

Ár 2026, miðvikudaginn 15. apríl, var haldinn aukafundur borgarráðs nr. 5820. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:07. Viðstödd voru, auk borgarstjóra sem tók sæti á fundinum með rafrænum hætti, Alexandra Briem, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Hildur Björnsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Helga Þórðardóttir, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Kjartan Magnússon og Líf Magneudóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Heimir Snær Guðmundsson, Róbert Marshall og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjórnar, dags. 15. apríl 2026, sbr. samþykkt borgarstjórnar 14. apríl 2026l á tilnefningu áheyrnarfulltrúa óháðra borgarfulltrúa í borgarráð. Tilkynnt var að Kjartan Magnússon verði áheyrnarfulltrúi í borgarráði og að Marta Guðjónsdóttir verði varaáheyrnarfulltrúi. MSS22060043

    Fylgigögn

  2. Lagt fram trúnaðarmerkt bréf fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 15. apríl 2026, varðandi ársreikning A-hluta og samantekinn ársreikning A- og B-hluta Reykjavíkurborgar 2025 ásamt trúnaðarmerktum ársreikningi A-hluta og samstæðu Reykjavíkurborgar 2025, ódags. Einnig er lögð fram skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 15. apríl 2026, greinargerð fagsviða og sjóða A-hluta, dags. 15. apríl 2026, greinargerð B-hluta fyrirtækja, dags. 15. apríl 2026, verkstöðuskýrsla nýframkvæmda, ódags, ábyrgða- og skuldbindayfirlit, dags. 15. apríl 2026 og bréf endurskoðunarnefndar, dags. 13. apríl 2026.

    -    Kl. 9:10 tekur borgarstjóri sæti á fundinum og aftengist fjarfundabúnaði.
    -    Kl. 9:12 tekur Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir sæti á fundinum.

    Vísað til ytri endurskoðunar.

    Gögn undir þessum lið eru trúnaðarmerkt fram að framlagningu ársreikningsins á aukafundi borgarráðs þann 22. apríl nk. Ársreikningur A-hluta og samstæðureikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 hefur verið undirbúinn af fjármálaskrifstofu í samræmi við ákvæði 61. greinar sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur Reykjavíkurborgar telst fullgerður og tilbúinn til endurskoðunar.

    Halldóra Káradóttir, Erik Tryggvi Striz Bjarnason, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir, Ingunn Ólafsdóttir, Jónas Skúlason, Lárus Finnbogason og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010009

  3. Lögð fram yfirlýsing um stjórnarhætti og ófjárhagslegar upplýsingar, ódags.

    Gögn undir þessum lið eru trúnaðarmerkt fram að framlagningu ársreiknings Reykjavíkurbogar 2025 á aukafundi borgarráðs þann 22. apríl nk.

    Halldóra Káradóttir, Erik Tryggvi Striz Bjarnason, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir, Ingunn Ólafsdóttir, Jónas Skúlason, Lárus Finnbogason og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010009

  4. Lögð fram skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 25. mars 2026, um framkvæmd styrkjareglna.

    Gögn undir þessum lið eru trúnaðarmerkt fram að framlagningu ársreiknings Reykjavíkurbogar 2025 á aukafundi borgarráðs þann 22. apríl nk.


    Halldóra Káradóttir, Erik Tryggvi Striz Bjarnason, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir, Ingunn Ólafsdóttir, Jónas Skúlason, Lárus Finnbogason og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26030021

  5. Lögð fram skýrsla fjármála- og áhættustýringarsviðs, dags. 15. apríl 2026, um samantekt yfir breytingar á fjárhagsáætlun 2025.

    Gögn undir þessum lið eru trúnaðarmerkt fram að framlagningu ársreiknings Reykjavíkurbogar 2025 á aukafundi borgarráðs þann 22. apríl nk.

    Halldóra Káradóttir, Erik Tryggvi Striz Bjarnason, Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir, Ingunn Ólafsdóttir, Jónas Skúlason, Lárus Finnbogason og Sigurrós Ásta Sigurðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið. FAS26010009

Fundi slitið kl. 9:59

Alexandra Briem Dóra Björt Guðjónsdóttir

Einar Þorsteinsson Hildur Björnsdóttir

Sanna Magdalena Mörtudottir Skúli Helgason

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 15. apríl 2026 - Prentvæn útgáfa