Borgarráð - Borgarráð fimmtudaginn 26. mars 2026 nr. 5819

Borgarráð

Ár 2026, fimmtudaginn 26. mars, var haldinn 5819. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09:04. Viðstödd var Alexandra Briem. Borgarstjóri og eftirtaldir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar tóku sæti á fundinum með rafrænum hætti með vísan til heimildar í 2. málsl. 4. mgr. 44. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar sbr. 3. mgr. 17. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011: Björn Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Einar Þorsteinsson, Helga Þórðardóttir, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Skúli Helgason og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Heimir Snær Guðmundsson og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.

Þetta gerðist:

  1. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 18. mars 2026 á auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna Árbæjarlóns, Árbæjarstíflu og Rafstöðvarvegs, ásamt fylgiskjölum.

    -    Kl. 9:10 víkur Sanna Magdalena Mörtudóttir af fundinum og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir tekur sæti með rafrænum hætti.
    -    Kl. 9:15 tekur Líf Magneudóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Grettir Adolf Haraldsson, Heiða Aðalsteinsdóttir, Íris Reynisdóttir, Ólöf Örvarsdóttir og Þórólfur Jónsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK25110138

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Fyrir liggur að ágreiningur um Árbæjarlón er til meðferðar fyrir dómstólum og varðar grundvallaratriði um lögmæti þeirrar ákvörðunar að tæma lónið og þær breytingar sem nú er verið að festa í sessi með deiliskipulagi. Hæstiréttur hefur vísað málinu aftur til Landsréttar til efnislegrar meðferðar. Í ljósi þess er óábyrgt að halda áfram skipulagsvinnu sem gengur út frá því að niðurstaðan liggi fyrir, áður en dómstólar hafa skorið úr um málið. Tillagan felur í sér að staðfesta breytta stöðu svæðisins, þar sem Árbæjarlón er fellt út úr skipulagi og náttúrulegir farvegir skilgreindir í stað þess. Með því er í reynd verið að fyrirfram ákvarða niðurstöðu í máli sem enn er óútkljáð. Falli dómur Reykjavíkurborg og Orkuveitu Reykjavíkur í óhag er ljóst að forsendur skipulagsbreytingarinnar bresta og málið þarf að taka upp frá grunni. Það er því bæði skynsamlegt og í samræmi við góða stjórnsýsluhætti að bíða með auglýsingu þar til lagaleg staða liggur skýrt fyrir. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að ekki sé knýjandi þörf á að hraða málinu og að slíkt verklag feli í sér óþarfa áhættu fyrir borgina og kjósa því, með hliðsjón af framangreindu, gegn tillögunni.

    Fylgigögn

  2. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 25. mars 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. mars 2026 á tillögu um aðgerðaáætlun um líffræðilegan fjölbreytileika 2026-2030, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Benedikt Traustason og Ólöf Örvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK24120039

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna yfirborðsfrágangs við Leirtjörn 2026, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun er 78 m.kr.
    Samþykkt.

    Guðni Guðmundsson og Ólöf Örvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26030358

    Fylgigögn

  4. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð heimili sviðinu að hefja innkaupaferli vegna loftræsikerfa og innanhússfrágangs við Rimaskóla, ásamt fylgiskjölum. Kostnaðaráætlun er 450 m.kr.
    Samþykkt.

    Guðni Guðmundsson og Ólöf Örvarsdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK23070079

    Fylgigögn

  5. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 20. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki aðilaskipti að tveimur lóðum innan áfanga 3 við Bíldshöfða 7, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26030353

    Fylgigögn

  6. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki afnotasamning við Félagsbústaði hf. um afnot á hluta borgarlands við Þönglabakka 4, ásamt fylgiskjölum.
    Samþykkt.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26030374

    Fylgigögn

  7. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 23. mars 2026, þar sem óskað er eftir að borgarráð samþykki meðfylgjandi leigusamning um leigu á atvinnuhúsnæði í Ármúla 28-30, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað.

    Ólöf Örvarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26020100

  8. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 23. mars 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 23. mars 2026 á tillögu um breytingu á reglum um þjónustu frístundaheimila og reglum um þjónustu félagsmiðstöðva, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað. SFS25020020

    Fylgigögn

  9. Lagt fram bréf skóla- og frístundasviðs, dags. 23. mars 2026, sbr. samþykkt skóla- og frístundaráðs frá 23. mars 2026 á tillögu um að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva, ásamt fylgiskjölum.
    Frestað.

    -    Kl. 11:15 víkur Björn Gíslason af fundinum og Friðjón R. Friðjónsson tekur þar sæti. MSS26020040

    Fylgigögn

  10. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. mars 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi tillögu að ellefu samningsmarkmiðum vegna viðræðna við hverfisíþróttafélög Reykjavíkurborgar um yfirfærslu eignarhalds þeirra á mannvirkjum til Reykjavíkurborgar. 1. Samningsmarkmið þessi eiga einungis við eignayfirfærslu á mannvirkjum hverfaíþróttafélaga í Reykjavík sem jafnframt eru fjölgreinafélög. 2. Beiðni um að Reykjavíkurborg gangi til viðræðna um yfirtöku mannvirkja skal koma frá viðkomandi hverfisíþróttafélagi. 3. Eignayfirfærsla skal einungis taka til íþróttamannvirkja sem nýtast almannahagsmunum, s.s. íþróttahús og félags- og áhorfendaaðstaða. Önnur mannvirki falla utan við samningsmarkmið þessi. 4. Reykjavíkurborg skal vinna kostnaðarmetna úttektarskýrslu og áætlun um viðhaldsþörf fyrir næstu 30 árin fyrir þau mannvirki sem falla undir eignaryfirfærsluna. 5. Ekki skal koma fyrir fjárhagslegt endurgjald við eignayfirfærsluna. Heimilt er að gera undantekningu frá því ef hverfisíþróttafélag hefur fjármagnað mannvirkin sín að fullu sjálf. Í slíkum undantekningartilvikum skal miða við óháð verðmat á mannvirkjum og skal greiðsla ekki vera hærri en sem nemur 50% af verðmati að frádregnum kostnaði vegna áætlaðrar viðhaldsþarfar en þó að hámarki 10% af húsmati. 6. Hverfisíþróttafélag skal bera bótaábyrgð vegna tjóns á iðkendum, starfsfólki og öðrum gestum sem kann að skapast og er afleiðing af uppsafnaðri viðhaldsþörf yfirtekinna mannvirkja, í þrjú ár frá afhendingu eigna. 7. Tryggt skal að engar veðsetningar, ábyrgðir eða aðrar skuldbindingar fylgi mannvirkjum við eignayfirfærslu til Reykjavíkurborgar. 8. Reykjavíkurborg skal annast viðhaldsstjórnun í samræmi við niðurstöður úttektarskýrslu. 9. Samkomulag um eignayfirfærslu er háð samþykki borgarráðs. 10. Þegar samkomulag um eignayfirfærslu hefur verið samþykkt í borgarráði skal hverfisíþróttafélag gefa út afsal til Reykjavíkurborgar. 11. Reykjavíkurborg skal bera kostnað sem hlýst af þinglýsingu réttinda vegna eignayfirfærslunnar.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.
    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.

    Auður Inga Ingvarsdóttir, Helena Rós Sigmarsdóttir og Steinþór Einarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26030096

    Fylgigögn

  11. Fram fer kynning á haftengdri upplifun og útivist.

    Salóme Rósa Þorkelsdóttir og Steinþór Einarsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK22090017

  12. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 24. mars 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að ráða Ingunni Ólafsdóttur í starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar en hún var metin hæfust til þess af ráðgefandi hæfnisnefnd, sbr. lokaskýrslu nefndarinnar til borgarráðs, dags. 19. mars 2026.

    Samþykkt.

    Auður Björgvinsdóttir, Ingi K. Magnússon og Kristín Baldursdóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25090039

    Fylgigögn

  13. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 23. mars 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð staðfesti hjálagt samkomulag félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um breytt fyrirkomulag vegna byggingar hjúkrunarheimilis í Reykjavík fyrir allt að 117 ný rými, dags. 23. mars 2026.

    Samþykkt.

    Oddrún Helga Oddsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS26030094

    Fylgigögn

  14. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 26. mars 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki meðfylgjandi samning um viðskiptavakt á eftirmarkaði með skuldabréf Reykjavíkurborgar og samning um fyrirgreiðslu vegna samnings um viðskiptavakt. Reykjavíkurborg mun gera samhljóða samninga til eins árs við allt að fimm viðskiptavaka.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Samþykkt.

    Halldóra Káradóttir og Bjarki Rafn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010006

    Fylgigögn

  15. Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. 26. mars 2026, ásamt fylgiskjölum:

    Lagt er til að borgarráð samþykki að greitt verði viðbótar eiginfjárframlag til Félagsbústaða hf. að fjárhæð 300.000 þ.kr. vegna ársins 2025, sbr. samþykkt borgarstjórnar þann 20. janúar 2026. Framlagið verði fjármagnað með lækkun á handbæru fé. Breytingin hefur áhrif á fjárflæði A-hluta Reykjavíkurborgar og samantekna áætlun A- og B-hluta til lækkunar á handbæru fé í lok tímabils. Ekki er talin þörf á jafnréttisskimun.

    Greinargerð fylgir tillögunni.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir og Bjarki Rafn Eiríksson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010020

    Fylgigögn

  16. Lagðar fram tillögur borgarstjóra, dags. 26. mars 2026, að viðauka við fjárhagsáætlun vegna fjárfestingar A-hluta Reykjavíkurborgar 2026.
    Vísað til borgarstjórnar.

    Halldóra Káradóttir, Guðni Guðmundsson og Hróðný Njarðardóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26030008

    Fylgigögn

  17. Fram fer umræða um almyrkva á sólu í Reykjavík þann 12. ágúst næstkomandi. MSS26030102

    Borgarráð leggur fram svohljóðandi bókun:

    Ljóst er að almyrkvi á sólu er viðburður sem mun hafa töluverð áhrif á Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélög á vesturhluta landsins. Fyrir liggur að mikill fjöldi ferðamanna mun leggja leið sína til Íslands og munu væntanlega safnast þar sem best útsýni verður. Þetta er ekki viðburður sem við höfum stjórn á, en það er ljóst að til þess að fyrirbyggja vandamál og jafnvel hættu, þarf að grípa til aðgerða til þess að veita upplýsingar, beina fólki á rétta staði og fleira. Um er að ræða ástand sem með réttu heyrir undir almannavarnir. Borgarráð leggur áherslu á að ríkið komi að borðinu og aðstoði sveitarfélög, lögreglu og aðra viðbragðsaðila við það að fara í þær aðgerðir sem fyrir liggur að ráðast þurfi í svo vel fari. Borgarráð skorar á ríkisstjórn Íslands að veita fjármagni í þetta mikilvæga verkefni svo að Ísland komi vel frá því.

    Eva Bergþóra Guðbergsdóttir og Kristján Bjarki Jónasson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

  18. Lagt fram trúnaðarmerkt minnisblað borgarlögmanns, dags. 20. nóvember 2025, varðandi grásleppuskúr við Ægisíðu, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum.

    Steinþór Einarsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25010069

  19. Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 19. febrúar 2026, þar sem óskað er eftir heimild borgarráðs til að selja íbúð nr. 114 við Hallgerðargötu 11A til Félagsbústaða hf. fyrir krónur 30.290.720,-. ásamt fylgiskjölum. Jafnframt lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 24. mars 2026. FAS25060027
    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggur fram svohljóðandi bókun:

    Borgarfulltrúi Viðreisnar þakkar fyrir framlagða samantekt og telur mikilvægt að þessar upplýsingar liggi skýrt fyrir. Slík gagnasöfnun er nauðsynleg til að tryggja upplýsta umræðu um félagslega blöndun og þróun íbúabyggðar í borginni. Við Hallgerðargötu má sjá gott dæmi um vel heppnaða uppbyggingu þar sem fjölbreyttar íbúðir og starfsemi fara saman. Sérstaklega er jákvætt að innan sama húsfélags sé bæði leikskóli og fjölbreytt samsetning íbúða, sem styður við lifandi og fjölbreytt hverfi. Gögnin sýna jafnframt að hlutfall félagslegra og óhagnaðardrifinna íbúða í húsfélaginu er umtalsvert og í samræmi við þau markmið sem borgin hefur sett sér um félagslega blöndun. Það er mikilvægt að halda því til haga í umræðunni að húsfélagið sé innan þeirra marka sem stefna borgarinnar gerir ráð fyrir. Þetta dæmi undirstrikar að hægt er að ná góðu jafnvægi í uppbyggingu þar sem tekið er mið af bæði félagslegum markmiðum og heildarsamsetningu byggðar. Slík nálgun ætti að vera leiðarljós í áframhaldandi uppbyggingu í Reykjavík.

    Fylgigögn

  20. Fram fer umræða um fyrirhugaða lóð nýja Landspítalans. MSS25030025

    -    Kl. 13:17 víkur Dóra Björt Guðjónsdóttir af fundinum og Sabine Leskopf tekur sæti með rafrænum hætti. 
    -    Kl. 13:20 víkur Skúli Helgason af fundinum og Sara Björg Sigurðardóttir tekur sæti með rafrænum hætti.

  21. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 24. mars 2026, varðandi ferð borgarstjóra og borgarfulltrúanna Dóru Bjartar Guðjónsdóttur og Kjartans Magnússonar til Nuuk, dagana 8.-12. apríl nk., vegna Vestnorræna höfuðborgarsjóðsins. MSS26030093

    Fylgigögn

  22. Lagt fram bréf borgarstjóra, dags 24. mars 2026, varðandi ferð borgarstjóra til Strassborgar dagana 28. mars til 2. apríl nk. á sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins. MSS26030095

    Fylgigögn

  23. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030097

  24. Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók. MSS26030066

  25. Lögð fram að nýju tillaga borgarstjóra, dags. 17. mars 2026, ásamt fylgiskjölum, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 19. mars 2026 og færð í trúnaðarbók:

    Lagt er til að borgarráð samþykki drög að húsnæðisáætlun Reykjavíkur 2026-2035. Trúnaður er um húsnæðisáætlunina þar til borgarstjóri hefur kynnt efni hennar á opnum fundi föstudaginn 20. mars nk.

    Samþykkt með fjórum atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins sat hjá við afgreiðslu málsins.

    Málið fer til endanlegrar afgreiðslu borgarstjórnar með vísan til ákvæða 2.mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.

    Haraldur Sigurðsson og Hilmar Hildarson Magnúsarson tóku sæti á fundinum undir þessum lið ásamt Oddrúnu Helgu Oddsdóttur sem tók sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. Einnig tóku borgarfulltrúarnir Friðjón R Friðjónsson, Guðný Maja Riba, Kristinn Jón Ólafsson, Sabine Leskopf og Sara Björg Sigurðardóttir sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.

    Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:

    Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggjast gegn fyrirliggjandi húsnæðisáætlun. Gerir áætlunin ráð fyrir því að 35% af húsnæði í Reykjavík verði niðurgreitt af hinu opinbera en ekkert í íslenskri samfélagsgerð bendir til þess að ríflega þriðjungur borgarbúa þurfi eða vilji slíka meðgjöf frá samborgurum sínum. Betur færi á því að ráðast í stóraukna úthlutun byggingarlóða í Reykjavík svo auka megi framboð, draga úr hækkunum húsnæðisverðs og gera fleirum kleift að eignast eigið heimili. Mælingar sýna glöggt hvernig um 90% þeirra sem búa á leigumarkaði óska þess helst að eignast eigið húsnæði. Séreignarstefnan er kjarninn í húsnæðisstefnu Sjálfstæðiflokksins enda húsnæði ein stærsta efnahagslega breytan í heimilisbókhaldi fólks og séreign besta leiðin til að tryggja fjölskyldum öruggt húsnæði og fjárhagslegt sjálfstæði.

    Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins lagði fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:

    Framsókn bendir á að í þessari húsnæðisáætlun eru tölur um íbúðir sem ekki munu byggjast á næstu árum. Til dæmis 7500 íbúðir í Vatnsmýri sem gera ráð fyrir því að Reykjavíkurflugvöllur fari en engin áform eru uppi um að byggja annan flugvöll í augnablikinu. Þá er einnig gert ráð fyrir að byggja hátt í 700 íbúðir í „nýja Skerjafirði“ sem enn er inni á svæði flugvallarins. Framsókn telur að auka þurfi framboð af byggingarhæfum lóðum og hefja strax skipulagsvinnu á Geldinganesi, Kjalarnesi og í Úlfarsárdal.

    Áheyrnarfulltrúi Viðreisnar lagði fram svohljóðandi bókun sem færð var í trúnaðarbók:

    Borgarfulltrúi Viðreisnar styður meginmarkmið húsnæðisáætlunarinnar um aukið framboð íbúða og aukna félagslega blöndun. Jákvætt er að skerpt sé á ábyrgð Félagsbústaða og að gerðar séu skýrar kröfur um dreifingu félagslegs húsnæðis milli hverfa, enda er það lykilforsenda þess að vinna gegn samþjöppun og byggja upp fjölbreytt samfélag. Hins vegar vekur það verulegar áhyggjur að markmið um að allt að 35% nýrra íbúða verði óhagnaðardrifnar. Um er að ræða verulega breytingu frá fyrri stefnu um 25%. Hér er lögð til breyting án þess að skýrt sé hvernig framkvæmd eða eftirspurn eigi að styðja við þessa aukningu. Slíkar aðstæður kalla á raunsæi í markmiðasetningu og greina nákvæmlega hvernig þessi 35% skiptist. Undanfarið hefur þessi 35% prósentutala verið kjöftuð upp af pólitík og látið eins og þetta sé ekki ný tala en svo er sláandi að borgin ætli að láta undan þessum þrýstingi án þess að kalla eftir að önnur sveitarfélög verði gerð ábyrg fyrir sams konar áætlun. Viðreisn í Reykjavík leggur jafnframt ríka áherslu á að húsnæðismál verði leyst á svæðisbundnum grunni með skýrum húsnæðissáttmála sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Án slíks samkomulags er raunveruleg hætta á að ábyrgðin lendi áfram nær alfarið á Reykjavík, sem er hvorki sjálfbært né sanngjarnt til lengri tíma. MSS26030068

    Fylgigögn

  26. Lögð fram að nýju tillaga borgarstjóra, dags. 10. mars 2026, ásamt fylgiskjölum, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 12. mars 2026 og færð í trúnaðarbók:

    Boðað hefur verið til aðalfundar Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. í samræmi við 10. gr. samþykkta félagsins þann 23. mars 2026 kl. 15.00 í Björtuloftum, 5. hæð í Hörpu. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Dagskrá aðalfundarins er eftirfarandi: Dagskrárliður 1: Fundur settur. Dagskrárliður 2: Kjör fundarstjóra og fundarritara. Dagskrárliður 3: Afstaða tekin til lögmæti fundarins. Dagskrárliður 5: Ávarp stjórnarformanns. Dagskrárliður 5: Skýrsla forstjóra um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári. Dagskrárliður 6: Endurskoðaður ársreikningur 2025 lagður fram til staðfestingar. Dagskrárliður 7: Ákvörðun um hvernig fara skal með hagnað eða tap og um arð og framlög í varasjóð. Stjórn leggur til að afkoma ársins yfirfærist til næsta árs og að ekki verði greiddur arður. Dagskrárliður 8: Kosning stjórnar. Dagskrárliður 9: Tilnefning í endurskoðunarnefnd. Stjórn félagsins leggur til að Heimir Þorsteinsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri á fjármálasviði Alvotech, verði kjörinn óháður aðili í endurskoðunarnefnd félagsins. Dagskrárliður 10: Kosning endurskoðanda. Ríkisendurskoðun fer með endurskoðun reikninga félagsins í samræmi við c-lið 1. mgr. 4. gr. laga nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, sbr. og 21. gr. samþykkta fyrir félagið. Dagskrárliður 11: Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna. Lagt er til að þóknun fyrir setu í stjórn hækki um 3,5%. Dagskrárliður 12: Starfskjarastefna félagsins. Starfskjarastefna Hörpu var undirrituð af stjórn 27. ágúst 2025. Stjórn leggur til að hún verði samþykkt óbreytt. Dagskrárliður 13: Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Lagt er til að tillögur undir dagskrárliðum 7, 9, 10, 11 og 12 verði samþykktar. Varðandi tillögu undir dagskrárlið 8 þá leggur tilnefninganefnd borgarráðs til að fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn Hörpu ohf. verði óbreyttir á þann hátt að Árni Geir Pálsson og Ólöf Kristín Sigurðardóttir verði áfram aðalmenn og Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir áfram varamaður, sbr. útskrift fundargerðar dags. 6. mars 2026. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss ohf. sem haldinn verður 23. mars 2026. MSS26030029

    Fylgigögn

  27. Lögð fram að nýju tillaga borgarstjóra, dags. 10. mars 2026, ásamt fylgiskjölum, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 12. mars 2026 og færð í trúnaðarbók:

    Boðað hefur verið til aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. í samræmi við 10. gr. samþykkta félagsins, föstudaginn 20. mars kl. 14.00 á Grand Hótel í Reykjavík. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Dagskrá aðalfundarins er eftirfarandi: Dagskrárliður 1: Setning fundar, kosning fundarstjóra og fundarritara. Dagskrárliður 2: Skýrsla stjórnar. Dagskrárliður 3: Ársreikningur 2025 lagður fram til afgreiðslu. Dagskrárliður 4: Ákvörðun um greiðslu arðs. Stjórn sjóðsins leggur til að á árinu 2026 verði ekki greiddur út arður vegna afkomu 2025 til hluthafa til að styrkja stöðu sjóðsins og tryggja vöxt eigin fjár. Dagskrárliður 5: Tillögur um breytingar á samþykktum Lánasjóðsins. Dagskrárliður 6: Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu. Stjórn leggur til að starfskjarastefnan standi óbreytt. Dagskrárliður 7: Kosning stjórnar og varastjórnar skv. 15. gr. samþykktanna. Dagskrárliður 8: Kosning tilnefningarnefndar. Dagskrárliður 9: Kosning utanaðkomandi fulltrúa í endurskoðunarnefnd. Dagskrárliður 10: Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis. Árið 2022 var KPMG ráðið sem endurskoðandi Lánasjóðsins til 5 ára. Ekki er heimilt að segja upp samningnum, nema sérstakar ástæður kalli á það. Stjórn leggur til að samningurinn standi óhaggaður. Dagskrárliður 11: Ákvörðun um þóknun til stjórnar- og nefndarmanna fyrir störf þeirra. Stjórn leggur til að stjórnarlaun hjá Lánasjóðnum verði kr. 220.448 fyrir hvern mánuð og taki breytingum miðað við launavísitölu 1. janúar nk. Laun varaformanns verða 1,25-föld mánaðarlaun stjórnarmanna og laun formanns verða 1,5-föld mánaðarlaun stjórnarmanna. Varamenn í stjórn skulu fá laun fyrir hvern setinn fund, sem eru jöfn mánaðarlaunum stjórnarmanns. Dagskrárliður 12: Önnur mál. Lagt er til að tillögur undir dagskrárliðum 4, 6 og 10 verði samþykktar. Varðandi tillögu undir dagskrárlið 7 þá leggur tilnefninganefnd borgarráðs til að fulltrúi Reykjavíkurborgar í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga verði óbreyttur á þann hátt að Halldóra Káradóttir verði áfram aðalmaður, sbr. útskrift fundargerðar dags. 6. mars 2026. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sem haldinn verður 20. mars 2026. MSS26030032

    Fylgigögn

  28. Lögð fram að nýju tillaga borgarstjóra, dags. 10. mars 2026, ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktu fylgiskjali, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 12. mars 2026 og færð í trúnaðarbók:

    Boðað hefur verið til aðalfundar Íþrótta- og sýningahallarinnar hf. í samræmi við 8. gr. stofnsamþykkta félagsins, þriðjudaginn 24. mars nk. kl. 12.00 í Laugardalshöll við Engjaveg. Í samræmi við lið 4.4 í almennri eigandastefnu Reykjavíkurborgar þarf samþykki borgarráðs til beitingar réttinda eigandafyrirsvars vegna framlagðra tillagna. Dagskrá aðalfundarins er eftirfarandi: Dagskrárliður 1: Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár Dagskrárliður 2: Ársreikningur og skýrsla endurskoðanda Dagskrárliður 3: Tillaga stjórnar um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu og greiðslu arðs og framlög í varasjóð umfram þau réttindi sem Reykjavíkurborg sem hluthafi nýtur í þessu sambandi, sbr. 2. mgr. 3. gr. samþykkta þessara. Stjórn félagsins leggur til við aðalfund að ekki verði greiddur út arður og vísar að öðru leyti til ársreiknings varðandi ráðstöfun hagnaðar/taps þannig að hagnaður ársins færist á óráðstafað eigið fé. Dagskrárliður 4: Tillaga stjórnar um stefnu og framtíðarsýn og helstu mælikvarða Stjórn félagsins leggur til að stjórn Íþrótta- og sýningarhallarinnar hf. verði falið að móta stefnu um framtíðarsýn og helstu mælikvarða í rekstri félagsins. Dagskrárliður 5: Tillaga stjórnar um rekstrar- og fjárfestingaráætlun. Stjórn Íþrótta-og sýningarhallarinnar leggur til að framlögð fjárhagsáætlun 2026-2030 verði samþykkt. Dagskrárliður 6: Tillaga stjórnar um stefnu um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu. Stjórn Íþrótta- og sýningarhallarinnar leggur til að stjórninni verði falið að móta stefnu um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu. Dagskrárliður 7: Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu. Stjórn leggur til að þegar samþykkt starfskjarastefna, sem var samþykkt á fundi stjórnar 26.júní 2025, gildi áfram. Dagskrárliður 8: Aðrar stefnur sem stjórn skal bera undir hluthafafund skv. 3. mgr. 17. gr. Stjórn Íþrótta- og sýningarhallarinnar hf., leggur til við aðalfund félagsins 2026 að stefnur félagsins í áhættumálum, jafnréttismálum, umhverfismálum og persónuverndarmálum, sem samþykktar voru á stjórnarfundi 26. júní 2025, gildi áfram. Dagskrárliður 9: Kosning endurskoðunarfélags. Stjórn leggur til að DFK endurskoðun ehf. verði endurskoðunarfélag Íþrótta- og sýningarhallarinnar hf. Dagskrárliður 10: Kosið í stjórn félagsins. Lagðar fram tillögur eigenda um fulltrúa í stjórn. Dagskrárliður 11: Tillaga stjórnar um greiðslu þóknunar til stjórnar. Stjórn leggur til að stjórnarlaun verði 160.000 kr. á mánuði, en stjórnarformaður fái tvöfalda þá fjárhæð en varaformaður 1,5 stjórnarlaun. Hækkunin tekur mið af hækkun launavísitölu frá síðustu ákvörðun. Dagskrárliður 12. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. Lagt er til að tillögur undir dagskrárliðum 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9 og 11 verði samþykktar. Varðandi tillögu undir dagskrárlið 10 að þá leggur tilnefninganefnd borgarráðs til að tilnefna Þórhildi Ósk Halldórsdóttur frá fjármála- og áhættustýringarsviði Reykjavíkurborgar sem aðalmann í stað Önnu Karenar Arnarsdóttur. Að öðru leyti verði fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn Íþrótta- og sýningarhallarinnar hf. óbreyttir á þann hátt að Ómar Einarsson verði áfram formaður, Steinþór Einarsson áfram aðalmaður og Helga Friðriksdóttir áfram varamaður, sbr. útskrift fundargerðar dags. 6. mars 2026. Málið er trúnaðarmál fram yfir aðalfund Íþrótta- og sýningarhallarinnar hf. sem haldinn verður 24. mars 2026. MSS26030030

    Fylgigögn

  29. Lögð fram að nýju tillaga borgarstjóra, dags. 10. mars 2026, ásamt trúnaðarmerktu fylgiskjali, sem samþykkt var á fundi borgarráðs þann 12. mars 2026 og færð í trúnaðarbók:

    Lagt er til að borgarráð samþykki tillögu ráðgefandi hæfnisnefndar vegna ráðningar í starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar þar sem lagt er til að tveir umsækjendur leysi raunhæf verkefni sem ráðgefandi hæfnisnefnd mun leggja drög að, til samræmis við hjálagða greinargerð ráðgefandi hæfnisnefndar, dags. 9. mars. Að lokum mun ráðgefandi hæfnisnefnd vinna skýrslu um störf sín þar sem fram komi m.a. mat á því hvaða umsækjandi/umsækjendur teljast hæfastir miðað við skilgreind hæfnisviðmið um starfið. Endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar verður í kjölfarið falið að gera umsögn um skýrslu ráðgefandi hæfnisnefndar um umsækjendur um starf innri endurskoðanda. Áætlað er að leggja endanlega tillögu fyrir borgarráðsfund þann 26. mars nk.

    Auður Björgvinsdóttir, Ingi K. Magnússon og Kristín Baldursdóttir tóku sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. MSS25090039

    Fylgigögn

  30. Lögð fram að nýju beiðni borgarfulltrúanna Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur, dags. 9. mars 2026, sbr. 16. lið fundargerðar borgarráðs frá 19. mars 2026, þar sem borgarfulltrúarnir óska eftir heimild borgarráðs til að fá að tilnefna áheyrnarfulltrúa í ráðinu. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu borgarstjórnar, dags. 17. mars 2026. MSS26030041
    Frestað

  31. Lagðar fram fundargerðir endurskoðunarnefndar frá 9. mars og 16. mars 2026. MSS26010004

    Fylgigögn

  32. Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 19. mars 2026. MSS26010007

    Fylgigögn

  33. Lögð fram fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 18. mars 2026 MSS26010012

    Fylgigögn

  34. Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 25. mars 2026.
    9. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020

    Fylgigögn

  35. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls átta mál (MSS26010013, MSS26010011, MSS26030086, MSS26010028, MSS24100050, MSS23120095, MSS26030087, MSS26030021). MSS26030003

    Fylgigögn

  36. Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26030006

    Fylgigögn

  37. Lagt fram yfirlit yfir styrkumsóknir sem borist hafa borgarráði utan umsóknartíma.

    Samþykkt að veita Skáksambandi Íslands styrk að fjárhæð kr. 1.000.000 vegna minningarmóts um Friðrik Ólafsson. 
    Samþykkt að veita Provist ehf., hópi jarðvísindafólks, styrk að fjárhæð kr. 1.000.000 vegna ísaldarloka í Reykjavík. 
    Samþykkt að veita Landvernd styrk að fjárhæð kr. 500.000 vegna Grænnar göngu. 
    Samþykkt að veita Skáksambandi Íslands styrk að fjárhæð kr. 500.000 vegna lokahófs Reykjavíkurskákmótsins.
    Öðrum styrkumsóknum er hafnað. MSS25020031

    Fylgigögn

Fundi slitið kl. 14:14

Alexandra Briem Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

Einar Þorsteinsson Friðjón R. Friðjónsson

Sabine Leskopf Sara Björg Sigurðardóttir

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir

PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 26.03.2026 - Prentvæn útgáfa