Borgarráð
Ár 2026, fimmtudaginn 5. nóvember, var haldinn 5845. fundur borgarráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 09.05. Viðstödd voru auk borgarstjóra, Björg Magnúsdóttir, Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Pétur Hafliði Marteinsson, Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Skúli Helgason. Einnig sátu fundinn áheyrnarfulltrúarnir Sanna Magdalena Mörtudóttir og Silja Sóley Birgisdóttir. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Ebba Schram, Heimir Snær Guðmundsson Helga Lára Haarde og Þorsteinn Gunnarsson.
Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:
-
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 22. október 2026, sbr. samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs frá 21. október 2026 á kynningu lýsingar skipulagsgerðar Aðalskipulags Reykjavíkur 2040, dags. í október 2026, varðandi miðstöð um öryggisráðstafanir á Hólmsheiði, skilgreining samfélagsþjónustu (S63), ásamt fylgiskjölum.
- Kl. 9.07 tekur Magnea Gná Jóhannsdóttir sæti á fundinum með rafrænum hætti.
Samþykkt.
Ólöf Örvarsdóttir og Haraldur Sigurðsson taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. USK26100141
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fagnar því að vinna sé farin af stað við undirbúning Miðstöðvar um öryggisráðstafanir. Sem fyrr er mikilvægt að vanda þann undirbúning og staðarval fyrir nýja stofnun fyrir ósakhæfa einstaklinga og aðra sem hefðbundin refsivist á ekki við um. Fyrirliggjandi verklýsing aðalskipulagsbreytingar byggir á viljayfirlýsingu ríkis og Reykjavíkurborgar frá nóvember og markar upphaf skipulagsferlisins. Til skoðunar er staðsetning í nágrenni fangelsisins á Hólmsheiði, utan vaxtarmarka þéttbýlis en innan græna trefilsins. Við frekari vinnslu þarf að leggja sérstaka áherslu á að fyrirhuguð starfsemi falli vel að nærumhverfinu og að tekið verði tillit til náttúru- og útivistargilda svæðisins. Meirihlutinn leggur áherslu á að nú verði kallað eftir sjónarmiðum hagaðila og viðbrögð við fyrirhugaðri staðsetningu metin áður en tekin verður afstaða til næstu skrefa. Vandað verður til verka við skipulagsferlið þar sem bæði þarfir starfseminnar og hagsmunir nærumhverfisins eru hafðir að leiðarljósi.
Fylgigögn
-
Lögð fram tillaga borgarstjóra, dags. í dag, að viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Vísað til borgarstjórnar.Bjarki Rafn Eiríksson og Halldóra Káradóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS26010020
Fylgigögn
-
Lögð fram svohljóðandi tillaga borgarstjóra, dags. í dag:
Lagt er til að fjármála- og áhættustýringarsviði verði veitt heimild til að draga allt að 25 milljónir evra á lán nr. LD2188 hjá Þróunarbanka Evrópuráðsins (e. Council of Europe Development Bank, CEB). Lántakan fellur undir lántökuáætlun samkvæmt fjárhagsáætlun. Í krónum næmi lántakan um 3,4 milljörðum króna. Jafnframt er lagt til að fjármála- og áhættustýringarsviði verði veitt heimild til að semja við innlend fjármálafyrirtæki um gjaldeyrisvarnir vegna lántökunnar, að hluta eða öllu leyti.
Greinargerð fylgir tillögunni.
Samþykkt.Bjarki Rafn Eiríksson og Halldóra Káradóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti. FAS24020034
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur áherslu á að tryggja hagkvæma og ábyrga fjármögnun nauðsynlegra fjárfestinga í innviðum borgarinnar. Heimild til að draga allt að 25 milljónir evra, jafnvirði um 3,4 milljarða króna, á lánalínu Þróunarbanka Evrópuráðsins er hluti af lánasamningi sem Reykjavíkurborg gerði við bankann árið 2024 vegna umfangsmikils viðhaldsátaks í húsnæði grunnskóla, leikskóla og frístundastarfs. Frá árinu 2023 hefur Reykjavíkurborg fjárfest um 21,6 milljörðum króna í verkefninu og nemur lántaka frá bankanum til þessa um 5,2 milljörðum króna. Með þessari lántöku er áfram nýtt sú hagstæða fjármögnun sem samningurinn býður upp á, með það að markmiði að bæta ástand skólahúsnæðis og tryggja börnum og starfsfólki öruggt og gott umhverfi til náms og starfs. Lántakan er hluti af samþykktri lántökuáætlun ársins.
Fylgigögn
-
Lagt fram trúnaðarmerkt bréf Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 28. október 2026, ásamt trúnaðarmerktum fylgiskjölum. Afgreiðsla og bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók borgarráðs. MSS26100118
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um niðurlagningu starfshópa um innleiðingu húsnæðissáttmála og um leigumarkað, sbr. 15. lið fundargerðar borgarráðs frá 10. september 2026. Einnig lagt fram svar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, dags. 2. nóvember 2026, ásamt fylgiskjölum og trúnaðarmerktu fylgiskjali. MSS26090046
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um yfirlit yfir skólahúsnæði og kostnað, sbr. 32. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. september 2026. Einnig lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 21. október 2026. MSS26090013
Fylgigögn
-
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um eftirfylgni tillagna Innri endurskoðanda, sbr. 37. lið fundargerðar borgarráðs frá 22. október 2025. Einnig lagt fram svar Innri endurskoðunar og ráðgjafar, dags. 27. október 2026. MSS26100099
Fylgigögn
-
Lögð fram fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 4. nóvember 2026.
6. liður fundargerðarinnar er samþykktur. MSS26010020Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir embættisafgreiðslur erinda sem hafa borist borgarráði, alls 18 mál (MSS26010006, USK26080100, MSS26100078, MSS26050010, MSS26060102, MSS26100097, MSS26100116, MSS23110071, MSS26100114, MSS26010031, MSS26100114, MSS26100121, MSS26100112, MSS26100114, MSS26060172, MSS26100061, MSS26100068, SFS26100119). MSS26110001
Fylgigögn
-
Lagt fram yfirlit skrifstofu borgarstjórnar, dags. í dag, yfir umsagnir um rekstrarleyfisumsóknir veitinga- og gististaða sem veittar hafa verið skv. heimild í viðauka 2.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019. MSS26110002
Fylgigögn
-
Afgreiðsla undir þessum lið er færð í trúnaðarbók borgarráðs. MSS26100118
-
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar:
Frá því að nýr meirihluti tók við í júní 2026 hefur verið ráðist í umfangsmiklar breytingar á starfsemi Reykjavíkurborgar. Starfsfólki var sagt upp í þremur niðurskurðarlotum í júní, ágúst og október. Engin heildarmynd liggur þó fyrir af því hvaða áhrif þessar aðgerðir hafa haft á starfsfólk borgarinnar og þá þjónustu sem það veitir. Því er óskað svara við eftirtöldum spurningum. 1. Hversu mörg stöðugildi hafa verið lögð niður frá því að aðgerðirnar hófust í júní 2026 og til 1. nóvember 2026 sundurliðað eftir sviðum og starfsheitum? 2. Hversu mörgum starfsmönnum hefur verið sagt upp á sama tímabili? 3. Hversu margir starfsmenn hafa sjálfir sagt starfi sínu lausu á sama tímabili? 4. Hversu margir starfsmenn sögðu starfi sínu lausu á tímabilinu 1. júní – 1. nóvember 2025? 5. Hvaða starfsheiti hafa þessir starfsmenn sem hafa sagt upp frá því í júní 2026? 6. Safnar borgin upplýsingum um ástæður þess að starfsfólk segir starfi sínu lausu, til dæmis með starfslokaviðtölum Ef svo er, hvaða ástæður hafa verið nefndar frá því í júní 2026, sundurliðað eftir sviðum? Ef ekki, hvernig hyggst borgin meta áhrif breytinganna á mannauð og þjónustu? 7. Hversu mörg stöðugildi standa nú laus án þess að ráðið hafi verið í þau? 8. Hversu margir hafa verið endurráðnir í sama starf tímabundið eftir að hafa fengið uppsögn? Hversu margar af tímabundnu endurráðningunum voru skipulagðar fyrirfram? 9. Hversu margir hafa verið endurráðnir í sama starf eftir að hafa fengið uppsögn? Hversu margar af endurráðningum í sama starf voru skipulagðar fyrirfram? 10. Hversu margir hafa verið endurráðnir í annað starf eftir að hafa fengið uppsögn? Hversu margar af endurráðningum í annað starf voru skipulagðar fyrirfram?
Vísað til umsagnar skrifstofu borgarstjóra og borgarritara. MSS26110015
-
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir nánari upplýsingum um útfærðar/ákvarðaðar hagræðingaraðgerðir í fjárhagsáætlun velferðarsviðs, skóla- og frístundasviðs. menningar- og íþróttasviðs og umhverfis- og skipulagssviðs fyrir árið 2027. Óskað er eftir skýringu á þeim hagræðingaraðgerðum sem voru útlistaðar í kynningu sviðanna á fjárhagsáætlun 2027. Óskað er eftir að svar berist fyrir næsta borgarráðsfund svo hægt sé að meta aðgerðirnar fyrir seinni umræðu um fjárhagsáætlun.
Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. MSS26110017
-
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi fyrirspurn:
Óskað er eftir upplýsingum um innihald og fyrirkomulag þeirra hagræðingaraðgerða sem hafa verið teknar í bókasöfnum Reykjavíkur eftir rammaúthlutun og hvort frekari hagræðing er fyriráætluð á árinu 2027. Hafa hagræðingaraðgerðirnar haft áhrif á störf og ef svo er þá hve mörg störf, þ.e. uppsagnir, minnkað starfshlutfall og/eða lækkuð laun. Jafnframt er óskað eftir staðfestingu og/eða leiðréttingu á því að gerð hafi verið 5% hagræðingarkrafa á Borgarbókasafnið. Óskað er eftir að svar berist fyrir næsta borgarráðsfund svo hægt sé að meta aðgerðirnar fyrir seinni umræðu um fjárhagsáætlun.
Vísað til umsagnar fjármála- og áhættustýringarsviðs. MSS26110016
Fundi slitið kl. 09:57
Björg Magnúsdóttir Ari Edwald
Bjarni Guðjónsson Magnea Gná Jóhannsdóttir
Pétur Hafliði Marteinsson Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
Skúli Helgason
PDF útgáfa fundargerðar
Fundargerð borgarráðs 05.11.2026