Vinnslutillaga vegna Borgarlínu

Skipulagsmál

""

Vinnslutillaga vegna breytinga á svæðisskipulagi sveitarfélaga varðandi Borgarlínu hefur verið lögð fram um staðsetningu Borgarlínu og auknar byggingarheimildir innan áhrifasvæða hennar.

Drög að breytingum á svæðisskipulagi

Lögð er fram til forkynningar vinnslutillaga vegna breytinga á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillagan felst í að festa legu samgönguása fyrir Borgarlínu og að skilgreina viðmið um uppbyggingu á áhrifasvæðum.

Drög að breytingum á aðalskipulagi

Lögð er fram til kynningar vinnslutillögur vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016, Hafnarfjarðar 2013-2025, Kópavogsbæjar 2012-2024, Mosfellsbæjar 2011-2030, Reykjavíkurborgar 2010-2016 og Seltjarnarnesbæjar 2015-2033 sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillögurnar felast í að staðsetja legu Borgarlínu, helstu stöðva og skilgreina heimildir til uppbygginga á áhrifasvæðum.

Kynningarfundur

Sameiginlegur kynningarfundur verður haldin miðvikudaginn 7. júní kl. 15:00 í Salnum Kópavogi, Hamraborg 6.

Gögn

Vinnslutillögur eru aðgengilegar á eftirfarandi stöðum:

• Skrifstofu SSH, Hamraborg 9, 200 Kópavogi og á heimasíðunni www.ssh.is
• Bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ og á heimasíðunni www.gardabaer.is
• Ráðhúsi Hafnarfjarðar, Strandgöta 6, 220 Hafnarfjörður, og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is
• Skrifstofu Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 200 Kópavogur, og á heimasíðunni www.kopavogur.is
• Bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ og á heimasíðunni www.mosfellsbaer.is
• Þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík og á heimasíðu Reykjavíkurborgar
• Bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes og á heimasíðunni www.seltjarnarnes.is
• Skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ og á heimasíðunni www.kjos.is

Athugasemdir

Frestur til að gera athugasemdir eða koma með ábendingar við drög að svæðis- og aðalskipulagsbreytingum er til og með 20. júní 2017. Athugasemdir og ábendingar verða að vera skriflegar og þurfa að berast skrifstofu SSH eða á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags.

Tenglar

Vinnslutillaga aðalskipulag - greinargerð - drög

Borgarlína uppdráttur maí 2017

Líkleg áhrifasvæði - mynd með frétt